{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis mun á kjördag næstkomandi laugardag hafa aðsetur á Hótel Borgarnesi. Þar mun jafnframt fara fram talning atkvæða úr kjördæminu. Formaður yfirkjörstjórnar er Ingi Tryggvason lögfræðingur. Ingi segir í samtali við Skessuhorn búast við að fyrstu tölur úr NV kjördæmi gætu verið birtar um ellefuleytið um kvöldið. Aka þarf með atkvæði um langan veg, allt frá Ísafirði og Sauðárkróki, og því segir hann ekki hægt að búast við að talningu atkvæða ljúki fyrr en í fyrsta lagi um fjögurleytið um nóttina, ef allt gengur að óskum. Þá segir hann fleiri þætti spila inn í hvenær talningu geti lokið, svo sem færð og veður að kvöldi kjördags en sömuleiðis fjölda utankjörfundar atkvæða. Hátt hlutfall þeirra hægir verulega á talningu atkvæða. Hjá sýslumanninum á höfuðborgasvæðinu voru óvenjumargir búnir að kjósa utan kjörfundar í síðustu viku og má búast við að sama eigi við í öðrum kjördæmum. Ingi segir að vel hafi gengið að manna í hóp talningarfólks, en um 25 manns taka þátt í henni, að stærstum hluta vant talningarfólk frá kosningum undanfarinna ára.",
"innerBlocks": []
}
Atkvæði verða talin á Hótel Borgarnesi - Skessuhorn