Menn voru röskir við malbikunina í Búðardal, því veðurguðirnir voru ekkert að hlífa þeim. Ljósm. Gunnbjörn Óli Jóhannsson.

Malbikað í Búðardal

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það er ekki malbikað í Búðardal á hverjum degi, en mánudaginn 13. september stóðu yfir framkvæmdir við höfnina í Búðardal, í slagveðursrigningu. Verið var að ganga frá slitlagi við höfnina, eftir veituframkvæmdir, að sögn Kristjáns Inga Arnarssonar starfsmanns Dalabyggðar. Er svæðið þar með allt orðið lagt slitlagi og eykur það bæði öryggi gangandi vegfarenda og auðveldar umgengni um höfnina. Kolur ehf og Colas sáu um framkvæmdina fyrir sveitarfélagið.",
  "innerBlocks": []
}
Malbikað í Búðardal - Skessuhorn