Fréttir

true

Dalamenn safna undirskriftum og vilja Kjörbúðina aftur

Undirskriftalisti gengur nú um meðal íbúa í Dölum. Þar er mótmælt breytingum á matvöruversluninni í Búðardal úr Kjörbúð í Krambúð, þeim verðhækkunum sem breytingunni hafa fylgt og þess krafist að Kjörbúð verði aftur opnuð í sveitarfélaginu. Íbúar geti ekki sætt sig við allt að 25% hærra vöruverð en var í einu matvöruversluninni í sveitarfélaginu fyrir…Lesa meira

true

Flóðið í Hvítá má rekja til þess að Langjökull er að hopa

Ástæða flóðsins mikla sem varð í Hvítá í Borgarfirði aðfararnótt þriðjudags má rekja til þess að Langjökull hefur hopað. Við jökulröndina í krikanum sauðaustan við Hafursfell hefur nú myndast nýtt jaðarlón sem hefur tæmt sig. Vatnið í lóninu hefur valið sér nýja leið undir jökulinn, rennur suðurfyrir Hafursfell og fer í gamlan árfarveg Svartár sem…Lesa meira

true

Naumt tap Kára á heimavelli

Káramenn máttu sætta sig við 1-2 tap gegn Þrótti V., þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Akraneshöllinni. Gestirnir úr Vogunum komust yfir á 10. mínútu leiksins. Gestirnir komust þá inn í teiginn hægra megin og skutu að marki en Dino Hodzic varði í stöngina. Þaðan féll boltinn…Lesa meira

true

Ólafsvíkingar burstaðir

Víkingur Ó. fékk skell þegar liðið heimsótti Keflvíkinga í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Keflvíkingar réðu lögum og lofum á móti Ólafsvíkurliðinu, sem fann aldrei taktinn í leiknum. Að lokum fór svo að heimamenn sigruðu stórt, 6-1. Keflvíkingar brutu ísinn á 11. mínútu leiksins og var það mark af dýrari gerðinni. Davíð Snær…Lesa meira

true

Styrkja endurbætur Hallgrímskirkju

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 11. ágúst síðastliðinn 1,2 milljónar króna styrk til sóknarnefndar Saurbæjarsóknar vegna endurbóta á Hallgrímskirkju í Saurbæ. Sveitarstjórn hafði áður samþykkt styrkveitinguna, með því skilyrði að heildarfjármögnun væri tryggð. Það hefur nú verið gert og sveitarstjórn staðfesti því fyrri ákvörðun sína.Lesa meira

true

Ný heimasíða Skorradalshrepps

Sveitarfélagið Skorradalshreppur hefur tekið í notkun nýja heimasíðu. Vefsíðan er gerð af fyrirtækinu Netvöktun ehf. í Borgarnesi. Aron Hallsson kynnti hreppsnefnd nýju heimasíðuna á fundi í sumar, áður en hún var opnuð. Í fundargerð kemur fram að almenn ánægja sé með nýju heimasíðu hreppsins og samþykkt að heimila oddvita að kaupa ljósmyndir til að prýða…Lesa meira

true

Töluverður laxadauði í kjölfar aurflóðs í Hvítá

Vatns- og aurflóðið sem varð í Hvítá í Borgarfirði síðdegis á mánudaginn, og náði hámarki aðfarnótt þriðjudags, hefur haft mikil áhrif á lífríki árinnar. Dauðan lax má nú finna hálfgrafinn í aurnum á bökkum árinnar neðan við Barnafoss og Hraunfossa. Vargfugl er nú búinn að uppgötva hvað gerst hefur og sestur að veisluborði. Flóðið var…Lesa meira

true

Vesturlandsvegur lokaður í tvö kvöld til viðbótar

Eins og áður hefur verið greint frá hefur Vesturlandsvegur verið lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hvalfjarðarsveit síðustu tvö kvöld, milli klukkan 20:00 og 07:00 að morgni. Verður vegurinn einnig lokaður á sama kafla vegna framkvæmdanna í kvöld og annað kvöld, það er að segja miðvikudaginn 19. ágúst og fimmtudaginn 20. ágúst. Á meðan á…Lesa meira

true

LS gefur út leiðbeiningar vegna gangna og rétta í haust

Landssamtök sauðfjárbænda hafa gefið út leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hættustigs almannavarna. Leiðbeiningarnar voru unnar í samstarfi almannavarna, sóttvarnalæknis, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Um er að ræða almennar leiðbeiningar um framkvæmd á göngum og réttum.  Það er síðan á ábyrgð sveitastjórnar, sem fer með stjórn fjallskilamála, að tryggja að…Lesa meira

true

Strandveiðum lýkur í dag

Strandveiðisjómenn eru almennt óhressir með þá ákvörðum að lokað verður fyrir strandveiðar eftir daginn í dag. Veður hefur hamlað veiðum að undanförnu en afli verið góður þegar hefur gefið til veiða. Langt hefur verið að sækja fiskinn á Breiðafirðinum í ágústmánuði. Margir strandveiðisjómenn á Snæfellsnesi hafa því lítið getað róið í þessum mánuði og alls…Lesa meira