
Vegna vinnu við aðalvatnsveituæð verður vatnslaust á Hellissandi og Rifi næstkomandi mánudagskvöld, 24. ágúst. Vatnslaust verður frá kl. 21:00 og fram eftir kvöldi, að því er fram kemur á Facebook-síðu Snæfellsbæjar.Lesa meira

Vegna vinnu við aðalvatnsveituæð verður vatnslaust á Hellissandi og Rifi næstkomandi mánudagskvöld, 24. ágúst. Vatnslaust verður frá kl. 21:00 og fram eftir kvöldi, að því er fram kemur á Facebook-síðu Snæfellsbæjar.Lesa meira

Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu sex mánuðum ársins um 2,7 milljarða króna og fór úr 6,7 milljörðum í tæpa fjóra milljarða. Lækkunin nemur 41% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru og ferðatakmarkana hennti tengdri. Með ferðakostnaði er átt við ferðalög og uppihald á ferðalögum á Íslandi og erlendis. Tölurnar ná til A-hluta stofnana ríkisins…Lesa meira

Á Vesturlandi var 62 samningum um fasteignir þinglýst í júlímánuði. Er það umtalsvert meiri fjöldi en mánuðina á undan. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sérbýli og 21 samningur um annars konar eignir. Heildarveltan var 1.883 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,4 milljónir króna. Af þessum…Lesa meira

Á annað hundrað skólastjórnendur, kennarar og sérfræðingar tóku þátt í fjarfundi um sóttvarnarráðstafanir í framhalds- og háskólum með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni síðastliðinn þriðjudag. Á fundinum var rætt um skipulag skólastarfs á framhalds- og háskólastigi í upphafi nýs skólaárs og hvernig skólar gætu uppfyllt sínar skyldur gagnvart nemendum, samhliða fylgni við fyrirliggjandi…Lesa meira

Fjölskylda Helga Jónssonar, fyrrverandi starfsmanns Rafmagnsveitna ríkisins í Ólafsvík, færði Snæfellsbæ skemmtilega gjöf á dögunum. Um er að ræða tugi teikninga af fólki, húsum og náttúruperlum í sveitarfélaginu frá árunum í kringum 1970. Stefnt er að því að setja upp sýningu með teikningum Helga á haustmánuðum. Margar myndanna eru merktar en ekki allar. Teikningum af…Lesa meira

Ríkið er eins og kunnugt er með alræðisvald á vínmarkaði hér á landi. ÁTVR ákveður hvaða tegundir eru teknar til sölu í vínbúðunum – og hverjar ekki. Það vekur athygli að nú þegar landsmenn eru hvattir til að velja íslenska framleiðslu og styðja þar með við innlend fyrirtæki í þeirri viðleitni að lifa af, skuli…Lesa meira

Hlaupahópurinn „Hlaupum fyrir Berglindi“ hefur verið duglegur að safna áheitum fyrir sinn málstað en hópurinn ætlaði sér að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu sem átti að fara fram laugardaginn 22. ágúst. Eins og flestir vita hefur hlaupinu verið aflýst vegna kórónuveirufaraldursins en þeir sem ætluðu að taka þátt hafa verið hvattir til að hlaupa sín hlaup á…Lesa meira

Umræða hefur skapast á facebooksíðu íbúa í Dalabyggð í kjölfar þess að Jón Egill Jónsson tómstunda- og íþróttafulltrúi Dalabyggðar upplýsti foreldra um að ungmenni geta komist fram hjá reglum og keypt orkudrykki í gegnum svokallaða sjálfsafgreiðslukassa. Krambúðin í Búðardal hefur tvo slíka kassa en eftirlit er ekki mannað þar sem afgreiðslufólki er ætlað að sinna…Lesa meira

Undanfarin þrjú kvöld frá klukkan 20-07 var Vesturlandsvegur lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hvalfjarðarsveit vegna malbikunarframkvæmda. Framkvæmdum við yfirlögn lauk í morgun þannig að vegurinn verður ekki lokaður í kvöld eins og jafnvel hafði komið til greina. Í nótt verður unnið við frágang á stútum sem leiðir ekki til lokunar vegarins, en gæti þó…Lesa meira

Venju samkvæmt hefur Bændablaðið tekið saman og birt yfirlit um fjárréttir á Íslandi. Listinn var eins og fyrri ár unninn með þeim hætti að leitað var til sveitarfélaga og bænda um upplýsingar. Sökum sóttvarnaráðstafana vegna Covid-19 og fjöldatakmarkana verður gestum ekki heimilt að koma í réttir eins og verið hefur. Þá er mælst til þess…Lesa meira