Fréttir

true

Stór spýja hljóp fram Hvítá og rennsli árinnar nær þrefaldaðist

Gríðarstórt flóð sem bar með sér jökulleir hljóp úr vestanverðum Langjökli síðdegis á mánudaginn og í fyrrinótt. Leitaði flóðið sér farvegs um Svartá, sem alla jafnan er uppþornaður árfarvegur, sem rennur sunnan við Hafursfell, og þaðan í Hvítá ofan við ármót Hvítár og Geitár, ofan við Húsafell. Samkvæmt rennslismæli sem er við Kljáfoss við Hurðarbak…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í Mjólkurbikarnum

Lið ÍA karla í knattspyrnu er dottið úr leik í Mjólkurbikarnum eftir tapleik í 16-liða úrslitum gegn Val í gærkvöldi. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í síðasta mánuði en var frestað vegna Covid-19. Leikið var á Hlíðarenda í Reykjavík en síðast þegar þessi tvö lið mættust, á sama velli, fengu Valsmenn skell frá Skagamönnum…Lesa meira

true

Vilja fjölga íbúum á Bifröst

Flestir sem stunda nám við Háskólann á Bifröst gera það í fjarnámi og er skólinn í fararbroddi þegar kemur að slíku námsfyrirkomulagi. Nú er hafið átaksverkefni sem felst í að fjölga íbúum á Bifröst, sem eru nú 100 talsins en geta hæglega verið 350 miðað við framboð góðra íbúða. „Hugmyndafræðin er að fólk geti komið…Lesa meira

true

Er þess vegna skrýtinn

Hann er fæddur í Hafnarfirði, alinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og ættaður úr Vestmannaeyjum. „Það er ástæðan fyrir því að ég er dálítið skrýtinn.“ Þannig mælist Gísla Gíslasyni þegar hann er spurður út í upprunann. Gísli er í ítarlegu viðtali í Skessuhorni í dag. Þar fer hann yfir ferilinn sem lögmaður, bæjarstjóri, hafnarstjóri, íþróttamaður, félagsmálamaður…Lesa meira

true

Nær allir veitingastaðir heimsóttir

Lögreglan á Vesturlandi hefur undanfarna viku haft eftirlit með sóttvarnaráðstöfunum á veitingastöðum í landshlutanum. Að sögn lögreglu hafa nánast allir veitingastaðir umdæmisins verið heimsóttir og aðeins á einum þeirra voru gerðar athugasemdir við sóttvarnaráðstafanir. Þar hafði ekki verið gengið úr skugga um að gestir staðarins gætu haldið fjarlægðarmörk. Að sögn lögreglu biðu staðarhaldarar þar ekki…Lesa meira

true

N1 á nýjan stað á Akranesi

Festi hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um lóðaskipti. Þau fela í sér að lóðin þar sem núverandi afgreiðslustöð N1 stendur við Þjóðbraut verður afhent bænum í skiptum fyrir nýja lóð við Hausthúsatorg. Búist er við því að framkvæmdir hefjist á nýrri lóð snemma á næsta ári, að því er fram kemur í tilkynningu.…Lesa meira

true

Guðmundur Tyrfingsson gengur í raðir ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við Guðmund Tyrfingsson um að leika með liðinu næstu tvö árin, eða út keppnistímabilið 2022. Guðmundur er fæddur árið 2003 og uppalinn hjá liði Selfyssinga. Hann þykir efnilegur leikmaður, á að baki 32 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss í deild og bikar og hefur skorað í þeim átta mörk. Hann á að…Lesa meira

true

Ríkið tekur á sig risaábyrgð fyrir Icelandair

Viðræður hafa að undanförnu staðið yfir milli Icelandair Group og íslenskra stjórnvalda í samvinnu við viðskiptabanka félagsins, Íslandsbanka og Landsbankann, um útfærslu á lánalínu með ríkisábyrgð til félagsins. „Íslensk stjórnvöld hafa nú ákveðið að veita félaginu slíka ábyrgð á lánalínu að fjárhæð allt að 120 milljónir bandaríkjadala (um 16,5 ma.kr. á núverandi gengi). Ábyrgðin er…Lesa meira

true

Innlend kortavelta Íslendinga aldrei verið meiri en nú í júlí

Heildarvelta innlendra greiðslukorta hér á landi nam 81,2 milljörðum króna i júlí en þar af nam verslun 44,7 milljörðum króna. Aldrei hefur kortavelta Íslendinga hérlendis verið jafnhá í einum mánuði, að því er fram kemur í könnun Rannsóknaseturs verslunarinnar. Hlutfallsvöxtur innlendra korta hérlendis nam 18,5% frá sama mánuði í fyrra. „Ástæðu kröftugrar neyslu Íslendinga hérlendis…Lesa meira

true

Jafnt í Akraneshöllinni

ÍA og Víkingur R. skildu jöfn, 1-1, þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í knattspyrnu. Leikið var í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Leikurinn var markalaus framan af, eða allt þar til skammt var eftir af fyrri hálfleik. Þá skoraði Unnur Ýr Haraldsdóttir og kom Skagakonum yfir. Þannig var staðan lengi vel og virtist stefna í…Lesa meira