
Nýtt náms- og stuðningsver var nýverið opnað í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Námsverið er hluti af verkefni sem styrkt var af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu í þeim tilgangi að sporna við brotthvarfi úr námi. Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við skólann, á hugmyndina að námsverinu og hefur hún séð um að koma því á laggirnar.…Lesa meira








