Fréttir

true

Brynja Gná er íþróttamaður Grundarfjarðar

Þau sem voru tilnefnd til íþróttamanns Grundarfjarðar að þessu sinni eru Sigurður Heiðar Valgeirsson fyrir körfubolta, Brynja Gná Heiðarsdóttir fyrir hestaíþróttir, Jón Pétur Pétursson fyrir skotfimi, Ragnar Smári Guðmundsson fyrir knattspyrnu, en Telma Dís Ásgeirsdóttir litla frænka hans tók við viðurkenningunni þar sem hann var ekki viðstaddur, og svo Lydía Rós Unnsteinsdóttir fyrir blak en…Lesa meira

true

Stofna Menningarsjóðurinn undir Jökli

Á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur nú verið stofnaður Menningarsjóðurinn undir Jökli að frumkvæði sóknarprestsins sem fyrr á þessu ári kom til starfa. „Það hefur verið mitt lag á, þegar kemur að jöklinum, að skrifa með stóru joði, líkt og í Guð, en það er auðvitað ómeðvitað frá Kiljan. En þessvegna heitir sjóðurinn nú „undir“ með litlu…Lesa meira

true

Sækja um friðun elstu húsanna á Bifröst

Á afmælishátíð Háskólans á Bifröst í gær tilkynnti Reynir Ingibjartsson, útskriftarnemandi frá Samvinnuskólanum 1963, að árgangur hans hefði sótt um það til Húsafriðunarnefndar að fjögur elstu skólahúsin á Bifröst verði friðuð. Að sögn Reynis var vel tekið í erindið sem nú er til umsagnar hjá Minjavernd. Um er að ræða skólabygginguna þar sem hátíðarsalur og…Lesa meira

true

Snæfellingar töpuðu í fjörugum leik

Snæfell mátti játa sig sigrað gegn Vestra,72-91, í fjörgum leik í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Strax í upphafi leiks mátti sjá mikil batamerki á liði Snæfells frá fyrri leikjum tímabilsins. Allt önnur og betri holning er á liðinu eftir að Deandre Mason var látinn taka pokann sinn í…Lesa meira

true

Biljana Stanković tekur við Skallagrími

Biljana Stanković hefur verið ráðin þjálfari kvennaliðs Skallagríms sem leikur í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Skallagríms. Biljana er 44 ára gömul og kemur frá Serbíu. Undanfarin ár hefur hún þjálfað yngri flokka hjá Kris Kros Pancevo í heimalandinu og verið aðstoðarþjálfari yngri kvennalandsliða Serbíu með góðum…Lesa meira

true

Þæfingsfærð í Staðarsveitinni

Nú er snjóþekja á flestum leiðum á Vesturlandi, en þæfingsfærð er í Staðarsveit en unnið að hreinsun, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þungfært er á milli Búða og Hellna á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Skallagrímskonur misstu af sigrinum

Þjálfaralausar Skallagrímskonur töpuðu naumlega gegn Keflavík, 83-89, þegar liðin mættust í tíundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfunattleik. Leikið var í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímskonur mættu mjög ákveðnar til leiks og komust tíu stigum yfir með góðum spretti undir lok fyrsta leikhluta, 29-19. Þær héldu um það bil sama forskoti framan af öðrum fjórðungi. En…Lesa meira

true

Verkefnið Sýnum karakter innleitt hjá UMSB

Verkefnið Sýnum karakter var formlega innleitt á fræðslukvöldi sem Ungmennasamband Borgarfjarðar hélt í Hjálmakletti í Borgarnesi á þriðjudag í liðinni viku. Um er að ræða átaksverkefni um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði Sýnum karakter byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja bæði sálræna og félagslega færni iðkenda…Lesa meira

true

Ruth og Þorpið handhafar Múrbrjótsins

Ruth Jörgensdóttir Rauterberg og Þorpið, frístundamiðstöð á Akranesi, eru handhafar Múrbrjótsins 2018, ásamt Geitungunum, vinnu- og virknitilboði í Hafnarfirði. Múrbrjótinn hljóta Ruth og Þorpið vegna framlags í þágu margbreytileikans og jafnra tækifæra, eins og segir í tilkynningu frá Þroskahjálp. Geitungarnir hljóta viðurkenninguna vegna framlags í þágu aukinna tækifæra fatlaðs fólks á vinnumarkaði. Múrbrjóturinn var veittur…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 4. desember frá kl. 10:00 – 17:00. Þeir sem geta og mega gefa blóð eru eindregið hvattir til að mæta.Lesa meira