Fréttir

true

Skiptifatamarkaður fær góðar viðtökur í Andabæ

Í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri er skiptifatamarkaður í gangi. Markaðurinn er hluti af grænfánaverkefninu skólans. Foreldrar og starfsfólk hafa safnað saman fötum og komið þeim til starfsfólks leikskólans. „Þetta er gott dæmi um samfélagsverkefni sem gagnast almenningi í kringum okkur,“ segir Ástríður Guðmundsdóttir leikskólastjóri. „Flest barnafólk kannast við það hvernig börn vaxa upp úr fötunum…Lesa meira

true

Fyrsta gjöfin í sjóð til byggingar gróðurhúss í Brákarhlíð

Kvenfélag Álftaneshrepps á Mýrum færði nýverið Brákarhlíð og Hollvinasamtökum heimilisins tvö hundruð þúsund króna peningagjöf. Gjöfin er framlag til byggingar gróðurhúss í garði við Brákarhlíð. „Þetta er fyrsta gjöfin sem berst til þessa verkefnis í kjölfar umfjöllunar í Skessuhorni í haust þar sem þennan draum okkar um gróðurhús bar á góma. Þessir fjármunir sem um…Lesa meira

true

Íbúar í Borgarbyggð hafa aldrei verið fleiri

Íbúar í Borgarbyggð eru nú 3.810 og hafa þeir aldrei verið fleiri. „Ef horft er aftur til 1. janúar 1998 þá voru íbúar í þeim sveitarfélögum sem nú tilheyra Borgarbyggð 3.259 talsins. Í upphafi árs 2013 voru íbúar 3.469 og hefur þeim farið fjölgandi síðan, en 1. janúar 2018 voru íbúar 3.745. Miðað við bráðabirgðatölur…Lesa meira

true

Kaldar kveðjur forystu launþega til starfandi byggingafyrirtækja

Byggingaverktakar á Akranesi gagnrýna harðlega forystu verkalýðshreyfingarinnar, ASÍ og BSRB, sem stendur að baki Bjargi íbúðafélagi. Félagið er eins og kunnugt er byrjað að byggja þrjú fjölbýlishús á Akranesi með alls 33 íbúðum sem eiga að vera tilbúnar á leigumarkað næsta sumar. Flutt verða inn tilbúin einingahús frá Lettlandi og erlendir verkamenn fengnir til verksins.…Lesa meira

true

Grundfirðingar reiðir vegna læknaskorts

„Í dag sem svo oft áður var læknislaust í Grundarfirðinum. Mér skilst að læknir sem er í Ólafsvík hafi forfallast og læknir sem hér átti að vera hafi því verið fluttur þangað. Mér finnst þetta algjörlega óásættanlegt,“ skrifar íbúi í Grundarfirði á Facebook. „Í firðinum okkar eru miklar framkvæmdir og t.d. hjá G.Run eru um…Lesa meira

true

Eldri borgarar föndra

Eldri borgarar í Grundarfirði mættu hressir og kátir til Togga í Lavalandi í síðustu viku til að föndra. Thor Kolbeinsson, eða Toggi, tók vel á móti þeim og voru forláta snjókarlar föndraðir af mikilli alúð. Mikil og góð virkni er í Eldriborgarafélagi Grundarfjarðar og er alltaf eitthvað á döfinni hjá þeim. Á næstu dögum verður…Lesa meira

true

Slógu upp tónleikum meðan þeir biðu eftir fari

Gestir í Króksfjarðarnesi fengu óvænta tónleika frá Skúla mennska og Kyle Woolard á jólamarkaði um síðustu helgi. Skúli og Kyle höfðu leikið á tónleikum á Ísafirði daginn áður og voru á leið til Reykjavíkur. Bíll þeirra bilaði þegar þeir beygðu í suðurátt af Þröskuldum. Þeir urðu að skilja bílinn eftir og enduðu á jólamarkaðnum í…Lesa meira

true

Hlutu silfur á Íslandsmeistaramóti í línuklifri

Skagamenn hlutu silfurverðlaun í stúlknaflokki á nýafstöðnu Íslandsmeistarmóti í línuklifri sem fram fór í Hafnarfirði um helgina. Sylvía Þórðardóttir frá ÍA klifraði afbragðsvel og var hársbreidd frá því að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Um næstkomandi helgi halda Skagamenn svo árlegt jólamót í klifri og verður það haldið í samstarfi við Smiðjuloftið.Lesa meira

true

Mikilvægt er að vanda sig við flokkun á heimilisúrgangi

Mikil vitundarvakning um umhverfisvernd hefur orðið í samfélaginu okkar síðustu ár og eru flestir orðnir meðvitaðir um að fara vel með jörðina okkar. Einn mikilvægur þáttur í því er að flokka heimilisúrganginn svo hægt sé að endurvinna hann sem mest. Í daglegri neyslu fellur til mikið af úrgangi sem í flestum tilfellum mengar jörðina okkar…Lesa meira