Fréttir

true

Öld frá stofnun Samvinnuskólans – undanfara Háskólans á Bifröst

Í dag fór fram að viðstöddum Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands og öðrum gestum hátíðardagskrá á Bifröst í tilefni þess að í dag eru rétt hundrað ár frá stofnun Samvinnuskólans, undanfara Háskólans á Bifröst. Meðal dagskráratriða voru ávörp þeirra rektora sem stýrt hafa skólahaldi á Bifröst. Að loknum erindum var stillt upp í myndatöku. Ítarlega…Lesa meira

true

Siðanefnd Alþingis virkjuð

Steingrímur J Sigfússon forseti Alþingis tilkynnti þingheimi við upphaf þingfundar í dag að mál þingmanna, sem viðhöfðu gróft orðlag um samþingmenn sína og aðra á bar við Austurvöll 20. nóvember síðastliðinn, væri komið í viðeigandi farveg hjá forsætisnefnd þingsins sem mögulegt siðabrotamál. Siðanefnd Alþingis verður nú virkjuð í fyrsta skipti frá stofnun hennar.Lesa meira

true

Samkomulag undirritað um stuðning við tónlistarnám

Í morgun var undirritað samkomulag ríkis og sveitarfélaga um stuðning við tónlistarnám. Er samkomulaginu ætlað að jafna aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms á framhaldsstigi og söngnáms á mið- og framhaldsstigi, sem og að festa fjármögnun námsins betur í sessi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Það voru Lilja Alfreðsdóttir, mennta og menningarmálaráðherra, Bjarni…Lesa meira

true

Samið verður við Work North um niðurrif strompsins

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaustaðar hefur fengið afhent minnisblað frá verkfræðistofunni Mannviti um væntanlegt niðurrif á strompinum á lóð Sementsverksmiðjunnar. Sviðsstjóra hefur verið falið að gera samkomulag við verktakafyrirtækið Work North ehf. um niðurrif hans. Gerð var könnun meðal bæjarbúa Akraness þess efnis hvort fella ætti strompinn eða varðveita hann. Reyndust 94% íbúa fylgjandi því að…Lesa meira

true

Byggðarlög á Snæfellsnesi fá byggðakvóta

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur úthlutað samtals 14.305 tonnum í sértækan og almennan byggðakvóta. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er 5,3% af heildarafla í hverri tegund dregið af leyfilegum heildarafla og varið til ýmissa tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu.  Sértækur byggðakvóti Byggðastofnunar eykst um 94 tonn frá síðasta fiskveiðiári og verður 6.429…Lesa meira

true

Skagasigur í skemmtilegum leik

ÍA og KV mættust í fjörugum og skemmtilegum leik í 2. deild karla í körfuknattleik á Akranesi á laugardagskvöld. Skagamenn byrjuðu betur og voru fljótlega komnir með tíu stiga forskot á gestina. Þeir héldu því forskoti meira og minna allan leikinn. Varnarleikur ÍA var góður í upphafi leiks og lagði það grunninn að sigrinum. Gestirnir…Lesa meira

true

Snæfell burstaði Stjörnuna

Snæfell vann stórsigur á Stjörnunni, 81-58, í tíundu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærdag. Stjarnan byrjaði af miklum krafti, hreyfði boltann vel í sókninni og lék þétta vörn. Snæfellskonur fundu ekki taktinn í upphafsfjórðungnum og gestirnir höfðu afgerandi forskot að honum loknum, 11-23. Í öðrum leikhluta snerist taflið algjörlega…Lesa meira

true

Hundrað ár í dag frá því lagður var grunnur að skólahaldi á Bifröst

Í ár hefur því verið fagnað með ýmsu móti að 100 ár eru liðin frá að hornsteinn var lagður að skólastarfi við Háskólann á Bifröst og verður botninn sleginn í afmælisárið með veglegri dagskrá á Bifröst í dag, mánudaginn 3. desember. Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, og Leifur Runólfsson, formaður stjórnar háskólans og hátíðarstjóri,…Lesa meira

true

Gamla feitin í smáfuglana

Þessa skemmtilegu mynd birtu Veitur á upplýsingasíðu sinni, ásamt meðfylgjandi texta: „Að steikja laufabrauð á aðventunni er góður siður. Að henda afgangsfeiti í vaskinn/fráveituna er það ekki. Það vita þessir félagar. Þeir blanda feitinni við brauðafganga eða annað kornmeti og færa smáfuglunum.“ Góð ábending og til eftirbreytni.Lesa meira

true

Víðast hvar góð færð

Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Annars eru víðast hvar hálkublettir eða greiðfært, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira