Fréttir

true

Vilja binda enda á græðgi fyrirtækjanna – heimurinn þarfnast hærri launa

„Árangurinn, sem margar kynslóðir starfandi stétta hafa skilað og fagnað er fyrsta maí, sætir kerfisbundnum og linnulausum atlögum, þar sem valdamikil fjölþjóðleg fyrirtæki og fáeinir gríðarlega auðugir einstaklingar ráða lögum og lofum um hagkerfi heimsins. Stjórnvöld hörfa hvarvetna, eru leiksoppar þeirra ofurríku og bregðast skyldu sinni að tryggja mannsæmandi vinnu fyrir alla og binda enda…Lesa meira

true

Hitabylgja framundan

Eftir helgina tekur að hlýna um landið allt og þegar líður á vikuna má búast við að hiti verði upp undir 20 gráður víða um landið. En áður en til þess kemur geta íbúar á sunnan- og vestanverðu landinu átt von á suðaustan hvassviðri og úrkomu framan af vikunni. Veðurstofan spáir því að á þriðjudag…Lesa meira

true

Óvissa um orlofsuppbót eldri borgara og öryrkja

Alþýðusamband Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum af þeirri óvissu sem uppi er um orlofsuppbót almannatrygginga til lífeyrisþega. „Venjan er að ráðherra gefi út reglugerð um áramót um orlofs- og desemberuppbót á komandi ári. Reglugerðin fyrir árið 2017 hefur enn ekki verið undirrituð. Þessi óvissa fyrir eldri borgara og öryrkja er algjörlega óþolandi og ráðherra verður…Lesa meira

true

Hátíðarhöldin víða um land á baráttudegi verkalýðsins

Alþýðusambandi Íslands hafa borist tilkynningar um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu. Á Vesturlandi verður komið saman á öllum helstu þéttbýlisstöðum í tilefni dagsins. Lesendur geta kynnt sér dagskrána í auglýsingum í síðasta Skessuhorni. Í samantekt ASÍ er dagskráin þessi:   Akranes Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og…Lesa meira

true

Skagfirðingar leggja strenginn

Eins og greint var frá í frétt í síðasta Skessuhorni mun í sumar verða byrjað á lagningu 66 kV rafstrengs milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Í gær var skrifað undir samning þess efnis að Steypustöð Skagafjarðar mun leggja strenginn. Verkinu fylgir jarðvinna, slóðagerð og frágangsvinna milli tengivirkja á báðum þéttbýlisstöðunum. Vinna við strenginn hefst á næstu…Lesa meira

true

„Allt að smella saman á hárréttum tíma“

„Það er komin eftirvænting í hópnum eftir mótinu, það eina sem mætti lagast fyrir mót er veðrið. Það hefur ekki verið eins og við vildum helst hafa það, en það breytir því ekki að flautað verður til leiks á sunnudaginn og við hlökkum til,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn. Síðdegis á…Lesa meira

true

„Frábært þegar Pepsi deildin kemur í Ólafsvík“

„Mér líst bara vel á sumarið og við hlökkum til að mótið byrji. Vonandi verður bara gott veður í sumar, segir Ejub Purisevic, þjálfari karlaliðs Víkings Ó, léttur í bragði í samtali við Skessuhorn. Víkingur hefur leik í Pepsi deild karla í knattspyrnu sunnudaginn 30. apríl næstkomandi þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda. Undirbúningur er…Lesa meira

true

Afmælishátíð í Borgarnesi á morgun

Í tilefni af 150 ára verslunarafmæli Borgarness verður haldinn hátíðarsamkoma í Hjálmakletti laugardaginn 29. apríl þar sem íbúum sveitarfélagsins verður boðið til samsætis. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands verður heiðursgestur samkomunnar. Einnig verða opnaðar sýningar í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi og ljósmyndasýningin Tíminn gegnum linsuna enduropnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem saga Borgarness í nær 100…Lesa meira

true

Rjómi Sultuson er nýjasti íbúi Húsdýragarðsins

Alhvítur kálfur kom nýverið í heiminn í fjósinu í Reykjavík, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Nautkálfurinn Rjómi er undan kúnni Sultu sem býr í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Eins og sjá má er Rjómi alhvítur að lit rétt eins og móðir hans sem í raun heitir Hvíta-Gauta en gengur dags daglega undir nafninu Sulta. Móðir Rjóma er…Lesa meira

true

Lýsuhólsskóli útnefndur varðliði umhverfisins

Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra afhenti í dag umhverfisverðlaunin Kuðunginn fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Það var Endurvinnslan sem hlaut verðlaunin. Við sama tækifæri voru nemendur í Ártúnsskóla í Reykjavík og Lýsuhólsskóla – Grunnskóla Snæfellsbæjar, útnefndir Varðliðar umhverfisins.   Framúrskarandi verkefni Nemendur í Lýsuhólsskóla settu á síðasta ári upp sýningu í Salthúsinu…Lesa meira