Fréttir

true

Greitt ekið um vegina

Í gærkvöldi var ökumaður sem leið átti um Vesturlandsveg stöðvaður á 150 km/klst. Var honum gerð grein fyrir því að sektin fyrir brot af þessu tagi væri 130 þúsund krónur, einn mánuður í ökuleyfissviptingu og þrír punktar í ökuferilsskrá. Fyrir helgi var annar ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 148 km/klst í umdæmi Lögreglunnar á…Lesa meira

true

Ný ráðuneyti tóku til starfa í gær

Ný ráðuneyti tóku formlega til starfa í gær, mánudaginn, 1. maí. Dómsmálaráðuneyti annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hins vegar. Koma þau í stað innanríkisráðuneytisins. Breytingin byggist á ákvörðun ríkisstjórnarinnar og samþykki Alþingis á þingsályktun um skiptingu innanríkisráðuneytisins. Í framhaldi af þessu staðfesti forseti Íslands þann 7. apríl síðastliðinn tillögur forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs…Lesa meira

true

Varð fyrstur til að ná dagsskammtinum

Standveiðar hófust í gærmorgun þar sem gaf til sjós vegna veðurs. Skarphéðinn Ólafsson á Þresti SH-19 í Grundarfirði fór út um klukkan 6 í morgun og var kominn að landi aftur um níuleitið, fyrstu manna, með fullan dagsskammt. Sverrir Karlsson tók þessa mynd af Skarphéðni nú fyrir stundu.Lesa meira

true

Strandveiðitímabilið byrjar með brælu

Í dag er spáð suðaustan 13-23 m/s vindi og verður hvassast suðvestan til á landinu þar sem gengur á með snörpum vindhviðum við fjöll. Lægir heldur seinni partinn. Af þessum sökum er víða bræla á miðunum og smábátaflotinn sem halda mátti til strandveiða í dag er því víða bundinn við bryggju. Meðfylgjandi mynd er tekin…Lesa meira

true

Gæti tekið hressilega í bíla við fjöll

Veðurstofan spáir því að með morgninum og fram yfir miðan dag megi búast við snörpum vindhviðum, sérstaklega við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi. Vegagerðin varar við að vindhviður geti farið í 35 m/s.Lesa meira

true

Guðmundur og Hallgrímur eru Vesturlandsmeistarar í bridds

Lokakvöld þriggja kvölda keppni Opna Borgarfjarðarmótsins í tvímenningi í bridds fór fram á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Mótið var jafnframt Vesturlandskeppnin í tvímenningi. Fyrri keppniskvöldin voru spiluð í Logalandi. Talsverðar sviptingar voru á mótinu en að endingu lönduðu öruggum sigri strákarnir úr Hvalfjarðarsveit, þeir Guðmundur Ólafsson og Hallgrímur Rögnvaldsson. Skor þeirra var 59% og nokkuð örugg…Lesa meira

true

Sex fyrirtæki standa að baki hins nýja Knarr Maritime

Á sjávarútvegssýningunni í Brussel í liðinni viku var tilkynnt um stofnun nýs markaðsfyrirtækis á sviði skipalausna; Knarr Maritime. Að hinu nýja fyrirtæki standa íslensku fyrirtækin Skaginn 3X, Nautic, Kælismiðjan Frost, Brimrún, Naust Marine og Verkfræðistofan Skipatækni. Öll þessi fyrirtæki hafa á undanförnum árum komið að hönnun, þróun, smíði og sölu á búnaði og skipum til…Lesa meira

true

„Það er lýðheilsumál að laun dugi til framfærslu“

Fyrsti maí, baráttudagur verkalýðsins, var að vanda haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Á Akranesi stóð Verkalýðsfélag Akraness ásamt öðrum stéttarfélögum á svæðinu fyrir hefðbundinni dagskrá. Safnast var saman við Kirkjubraut 40 klukkan 14 og farin kröfuganga um Neðri – Skagann í lögreglufylgd og við undirleik Skólahljómsveitar Akraness. Að göngu lokinni verður baráttudagskrá í…Lesa meira

true

Víkingar fundu sig ekki gegn Val

Fyrstu leikir Pepsi deildar karla í knattspyrnu þetta sumarið voru leiknir í gær. Víkingur Ó. mætti Val á Valsvellinum í Reykjavík. Róðurinn var þungur fyrir Ólsara stærstan hluta leiksins og urðu þeir að lokum að sætta sig við tap, 2-0. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og gerðu sig líklega strax í upphafi en náðu…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu í fjörugum leik

Pepsi deild karla í knattspyrnu hófst í gær með þremur leikjum. Á Akranesi tók ÍA á móti Íslandsmeisturum FH og urðu Skagamenn að játa sig sigraða í fjörugum leik, 2-4. FH-ingar byrjuðu af krafti, fengu dauðafæri eftir aðeins þrjár mínútur eftir laglegt þríhyrningaspil í vítateig Skagamarnna en skotið fór yfir. Gestirnir voru mun sterkari í…Lesa meira