Fréttir

true

Íslandspóstur dregur úr þjónustu og hækkar verð

Íslandspóstur skrifaði föstum viðskiptavinum sínum bréf 10. apríl síðastliðinn þar sem tilkynntar eru breytingar á þjónustu fyrirtækisins frá og með 1. maí og nýtt umsýslugjald að auki. Varðandi árituð blöð og tímarit er kynnt að ef þau berast eftir klukkan 17 daginn fyrir dreifingardag verður innheimt sérstakt vinnslugjald fyrir hvern hafinn klukkutíma sem tekur að…Lesa meira

true

Spænskur miðjumaður til liðs við Víking

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur samið við spænska knattspyrnumanninn Alonso Sanchez Gonzalez um að leika með liðinu í sumar. Alonso er miðjumaður, fæddur árið 1990, en hann lék seinast með Raufoss í Noregi. Alonso æfði með Víkingi Ó. í æfingaferð á Spáni fyrr í mánuðinum og tók þar þátt í æfingaleikjum gegn Stjörnunni og Keflavík.Lesa meira

true

Borgnesingar og Mýramenn gera það gott í veitingarekstri

Sú áhugaverða staða er nú uppi að eigendur og rekstraraðilar fjögurra bestu veitingastaða Reykjavíkur, samkvæmt ferðavefnum Tripadvisor, eru ýmist Borgnesingar, Mýramenn eða tengdasynir af svæðinu. Þessa staði flokka gestir eftir upplifun sinni um gæði en á lista Tripadvisor eru 344 veitingastaðir í Reykjavík. Besta veitingastað Reykjavíkur meta gestir veitingastaðinn Restó við Rauðarárstíg og byggir sá…Lesa meira

true

Hjónavígsla í Akranesvita

Fyrsta hjónavígslan í Akranesvita fór fram 18. apríl síðastliðin þegar hin þýsku Tanja og Markus létu gefa sig saman í fjörunni fyrir neðan vitann. Sá sýslumaðurinn á Vesturlandi um vígsluna. Tanja og Markus komu til Íslands á vegum ferðaskrifstofunnar Katla Travel, sem sá um skipulag og undirbúning ferðarinnar. Fyrirtækið hefur meðal annars auglýst Akranesvita sem…Lesa meira

true

Háskóladagur á Bifröst á morgun

Háskólinn á Bifröst verður með opinn dag í háskólaþorpinu laugardaginn 29. apríl, milli klukkan 14 og 17. Á opna deginum verður sem fyrr námsframboð háskólans kynnt og nemendur bjóða gestum í gönguferðir um svæðið og skólann. Einnig verður skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Við Háskólann á Bifröst er í boði framsækið nám í viðskipta,- laga- og…Lesa meira

true

Verkís opnar starfsstöð í Stykkishólmi

Verkfræðistofan Verkís opnar í næstu viku starfsstöð á Borgarbraut 2 í Stykkishólmi í húsi lögreglunnar og Sýslumannsins á Vesturlandi. Með opnuninni hyggst Verkís styrkja net starfsstöðvanna í þeirri viðleitni að auka þjónustu fyrirtækisins á Snæfellsnesi og nærliggjandi sveitarfélögum.  Starfsstöðin í Stykkishólmi mun styðja við aðra starfsemi verkfræðistofunnar á landsbyggðinni en Verkís er nú þegar með…Lesa meira

true

Vortónleikaröð Söngbræðra hefst í kvöld

Félagar í Karlakórnum Söngbræðrum ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar kemur að æfingum og aðstoð við raddþjálfun. Kristján Jóhannsson óperusöngvari hefur í vetur hitt kórfélaga og kennt þeim sitthvað varðandi raddbeitingu, öndun og fleira sem flokka verður sem undirstöðu fágaðs söngs. Blaðamaður Skessuhorns leit við á æfingu hjá kórnum á Bifröst…Lesa meira

true

Fjöldi starfa í boði á Vesturlandi – allt frá klaufskurði til kennara

Athygli er vakin á því að í Skessuhorni vikunnar eru óvenjulega margar auglýsingar um laus störf. Þau eru af ýmsum toga og vítt og breitt um landshlutann. Eftirtalin störf eru meðal þeirra sem í boði er: Við Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi er fullt starf kennara, 80% staða leikskólakennara og hlutastarf við tónmenntakennslu í boði. Hjá Grundarfjarðarbæ…Lesa meira

true

Smíða búnað í fullkomið hollenskt verksmiðjuskip

Skaginn 3X hefur samið um smíði á uppsjávarverksmiðju um borð í hollenskt verksmiðjuskip. Um er að ræða áframþróun á búnaði og tækni sem fyrirtækið hefur selt til nokkurra staða í landvinnslur á undanförnum árum, meðal annars til Færeyja en nú síðast til Eskju á Eskifirði en sú verksmiðja var tekin í notkun á síðasta ári.…Lesa meira

true

Snæfell missti af titlinum

Keflavík varð í gærkvöld Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna eftir sigur á Snæfelli í fjórða leik liðanna í úrslitaviðureigninni. Keflavík hafði yfirhöndina frá fyrstu mínútu og gaf aldrei færi á sér. Þær sigruðu að lokum 70-50 og viðureignina þar með 3-1. Það voru því Keflvíkingar sem lyftu Íslandsmeistarabikarnum að leik loknum.   Gangur leiksins Keflavík átti…Lesa meira