Fréttir

true

Voces Thules byrjar haustdagskrá Kalmans

Sönghópurinn Voces Thules ríður á vaðið á haustdagskrá Kalman – tónlistarfélags Akraness með tónleikum í Vinaminni fimmtudaginn 17. september nk. kl. 20. Á efnisskránni eru helgisöngvar úr íslenskum miðaldahandritum, meðal annars til heiðurs Þorláki helga, Magnúsi Orkneyjajarli og heilögum Nikulási. Þá flytur hópurinn syrpu íslenskra þjóðlaga auk veraldlegra söngva sem tengjast Egils sögu, Grettis sögu…Lesa meira

true

Skallagrímur upp um deild þrátt fyrir tap í úrslitaleiknum

Skallagrímur lauk keppni í 5. deild karla í knattspyrnu þegar liðið mætti Hömrunum í úrslitaleik á VÍS-vellinum laugardaginn 12. september. Hamrarnir höfðu betur, 2:0, og fögnuðu þar með sigri í 5. deild. Bæði lið höfðu þó þegar tryggt sér sæti í 4. deild að ári. Hamrarnir byrjuðu leikinn af krafti og settu Borgnesinga undir talsverða…Lesa meira

true

Stefna á sláturtíðartvímenning

Í gærmorgun, á árlegum fundi forsvarsmanna Bridgefélags Borgarfjarðar, undir réttarvegg í Þverárrétt, var ákveðið að fyrsta spilamennska í félaginu verður mánudaginn 28. september kl. 19:30 í Logalandi. Þá verður fyrsta kvöld í tvímenningi sem fengið hefur nafnið Sláturtíðartvímenningur. Allir spilarar nær og fjær eru hvattir til að mæta og þeim lofað blíðum viðtökum, en ekki…Lesa meira

true

Hannesarsteinn færður vegna framkvæmda við Stykkishólmsveg

Hannesarsteinn við Stykkishólmsveg verður færður af núverandi stað vegna umfangsmikilla endurbóta á veginum. Steinninn stendur við afleggjarann að kirkjugarðinum og Nýrækt en ný veglína liggur yfir núverandi staðsetningu hans. Framkvæmdir við Stykkishólmsveg hófust í lok apríl og eru nú langt komnar. Vegagerðin stendur fyrir verkinu sem nær yfir um 3,4 kílómetra kafla. Vegurinn er breikkaður…Lesa meira

true

Fagnaði stórafmæli í réttunum

Í dag var réttað í Þverárrétt í Borgarfirði. Í röðum yngri bænda eru yngstu hjónin í Bakkakoti í Stafholtstungum; Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Ólafur Daði Birgisson. Þau tóku við búi í Bakkakoti í mars á þessu ári og voru því í fyrsta skipti að mæta í réttir sem slíkir. Reyndar hefur Lilja Rannveig mætt í…Lesa meira

true

Skagamenn fengu skell á Meistaravöllum

ÍA mátti sætta sig við stórt 5:1 tap gegn KR á Meistaravöllum á sunnudag þegar fyrsta umferð efri hluta Bestu deildar karla fór fram. Skagamenn höfðu lagt KR-inga 3:1 á Akranesi aðeins viku fyrr en Vesturbæingar svöruðu fyrir sig af krafti. Áhorfendur á Meistaravöllum voru 707. KR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir…Lesa meira

true

Kári kvaddi tímabilið með stórsigri á meisturunum

Káramenn luku keppni í 2. deild karla með glæsibrag þegar þeir lögðu deildarmeistara Hauka 4:0 í Akraneshöllinni laugardaginn 12. september. 182 áhorfendur voru á leiknum. Kári þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á öðru sæti deildarinnar og sæti í Lengjudeildinni að ári. Heimamenn sýndu strax að þeir ætluðu að gera sitt…Lesa meira

true

Gurrý fræðir um garða og gróður í Grundarfirði

Í tilefni af gróðursetningardeginum og Degi íslenskrar náttúru verður efnt til fræðslukvölds um garðyrkju í Samkomuhúsinu í Grundarfirði á morgun, þriðjudaginn 15. september. Þar mun Guðríður Helgadóttir, Gurrý, garðyrkjufræðingur miðla af áralangri reynslu sinni og þekkingu. Gurrý hefur starfað við garðyrkju allan sinn starfsferil og er landsmönnum að góðu kunn fyrir fræðslu um ræktun og…Lesa meira

true

Víkingur Ó lauk tímabilinu með stórsigri

Víkingur Ólafsvík lauk keppni í 2. deild karla í knattspyrnu með glæsibrag þegar liðið vann öruggan 4:0 sigur á KFA á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 12. september. Leikið var í fallegu og sólríku haustveðri og skartaði Ólafsvíkurvöllur sínu fegursta. Björn Henry Kristjánsson kom Víkingi á bragðið á 23. mínútu og Ingvar Freyr Þorsteinsson tvöfaldaði forystuna á 55.…Lesa meira

true

Skagakonur lögðu deildarmeistarana í lokaumferðinni

Skagakonur luku keppni í Lengjudeild kvenna með góðum 3:1 útisigri á deildarmeisturum Gróttu á Vivaldivellinum laugardaginn 12. september. Eftir markalausan fyrri hálfleik færðist heldur betur fjör í leikinn eftir hlé. Jafnræði var með liðunum framan af og fátt um marktækifæri í fyrri hálfleik. Staðan var því 0:0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Heimakonur brutu ísinn…Lesa meira