Fagnaði stórafmæli í réttunum

Í dag var réttað í Þverárrétt í Borgarfirði. Í röðum yngri bænda eru yngstu hjónin í Bakkakoti í Stafholtstungum; Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Ólafur Daði Birgisson. Þau tóku við búi í Bakkakoti í mars á þessu ári og voru því í fyrsta skipti að mæta í réttir sem slíkir. Reyndar hefur Lilja Rannveig mætt í réttina flest ár frá barnæsku og oftar en ekki átt þar afmæli. Sú var einnig raunin í dag og þrítugsafmæli fagnaði varaþingmaðurinn og bóndinn. Vinir færðu henni blóm af þessu tilefni. Á myndinni eru Lilja Rannveig og Ólafur Daði brosmild að vanda vel merkt 20M4, sem er einkennisnúmer Bakkakots.