Fréttir

true

Ný bílaþvottastöð Löðurs opnuð í Borgarnesi

Ný snertilaus bílaþvottastöð Löðurs við Brúartorg 6 í Borgarnesi var tekin í notkun fyrr í mánuðinum. Unnið hefur verið að framkvæmdinni í rúmt ár en samkvæmt upplýsingum frá Alfreð Ari Chiarolanzio, rekstrarstjóra Löðurs, hefur verkefnið tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað, meðal annars vegna uppsetningar nýrrar spennistöðvar og rafmagnstenginga. Löður býður upp á umhverfisvænni…Lesa meira

true

Minnt er á að hringveginum við Borgarnes verður lokað í kvöld

Sunnudagskvöld 16. ágúst og mánudagskvöld 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð. Veginum verður lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar…Lesa meira

true

Blaðburður í Borgarnesi

Skessuhorn auglýsir laust starf við blaðburð í neðri hluta Borgarness. Borið er út vikulega á miðvikudögum eftir að skóla lýkur. Umsóknir og nánari upplýsingar fást með að senda póst á netfangið bokhald@skessuhorn.is Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í þessari viku. Uppfært. Búið að ráða. Takk fyrir skjót viðbrögð!Lesa meira

true

Auka búnaðarþing ályktar gegn viðræðum við ESB

Auka búnaðarþing Bændasamtaka Íslands var haldið í Reykjavík í gær. Þar var samþykkt með þorra greiddra atkvæða að hagsmunir íslensks landbúnaðar væru að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Af þeim sökum leggst Búnaðarþing gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökum…Lesa meira

true

Forn tún í fullum blóma – sögur af Langavatnsdal

Það eru víða falleg svæði á Vesturlandi. Eitt þeirra er Langavatn og Langavatnsdalur sem liggur milli Borgarfjarðar og Dala. Þar var áður kirkjusókn með fjölda bæja sem eru allir löngu komnir í eyði. Um þetta er meðal annars skrifað um í Ferðabók Eggerts og Bjarna sem fóru þarna um sumarið 1754 og greindu frá því…Lesa meira

true

Þakka samstöðu og undirbúningi að vel tókst til

„Almyrkvi 2026 verður lengi í minnum hafður, ekki aðeins vegna hins stórbrotna náttúruatburðar heldur einnig vegna þeirrar samstöðu og samvinnu sem lagði grunn að öruggri og góðri upplifun íbúa og gesta á Vesturlandi,“ segir í tilkynningu frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. „Undirbúningur hófst vorið 2025 með það að markmiði að tryggja öryggi, stuðla að góðri…Lesa meira

true

Loka hringveginum sunnan við Borgarnes tvö kvöld

Sunnudagskvöld 16. ágúst og mánudagskvöld 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð. Veginum verður lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar…Lesa meira

true

Minnisvarði um almyrkvann settur upp í Snæfellsbæ

Snæfellsbær setti upp sérstakan minnisvarða í tilefni almyrkvans á sólu sem gekk yfir hluta Íslands miðvikudaginn 12. ágúst. Með verkinu verður minningu um þennan einstaka náttúruviðburð haldið á lofti um ókomin ár. Minnisvarðanum er jafnframt ætlað fræðsluhlutverk og miðlar hann upplýsingum um almyrkvann og þær sérstöku aðstæður sem skapast þegar tunglið gengur fyrir sólina. Þannig…Lesa meira

true

Local kveður Borgarnes

Veitingastaðnum Local í N1 í Hyrnunni í Borgarnesi hefur verið lokað eftir um 14 mánaða starfsemi. Lokunin kemur í kjölfar endurmats á rekstri fyrirtækisins og eru ekki uppi áform um að opna Local á nýjum stað í bænum að svo stöddu. Í svari Local við fyrirspurn Skessuhorns segir að ákvörðunin sé liður í því að…Lesa meira

true

ESB-aðild gæti opnað fyrir aukið erlent eignarhald í sjávarútvegi

Aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti haft veruleg áhrif á þær takmarkanir sem nú gilda um erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, en hún mun vafalítið skapa líflegar umræður og einhver mótrök væntanlega líta dagsins ljós á næstu dögum. Samkvæmt henni mun núverandi heimild Íslands samkvæmt…Lesa meira