Ný bílaþvottastöð Löðurs opnuð í Borgarnesi

Ný snertilaus bílaþvottastöð Löðurs við Brúartorg 6 í Borgarnesi var tekin í notkun fyrr í mánuðinum. Unnið hefur verið að framkvæmdinni í rúmt ár en samkvæmt upplýsingum frá Alfreð Ari Chiarolanzio, rekstrarstjóra Löðurs, hefur verkefnið tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað, meðal annars vegna uppsetningar nýrrar spennistöðvar og rafmagnstenginga.

Ný bílaþvottastöð Löðurs opnuð í Borgarnesi - Skessuhorn