
Loka hringveginum sunnan við Borgarnes tvö kvöld
Sunnudagskvöld 16. ágúst og mánudagskvöld 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð. Veginum verður lokað á meðan framkvæmdum stendur og verður merkt hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöldin. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas, verktakanum sem vinnur verkið.