
ESB-aðild gæti opnað fyrir aukið erlent eignarhald í sjávarútvegi
Aðild Íslands að Evrópusambandinu gæti haft veruleg áhrif á þær takmarkanir sem nú gilda um erlent eignarhald í íslenskum sjávarútvegi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, en hún mun vafalítið skapa líflegar umræður og einhver mótrök væntanlega líta dagsins ljós á næstu dögum. Samkvæmt henni mun núverandi heimild Íslands samkvæmt EES-samningnum til að viðhalda slíkum takmörkunum að óbreyttu falla niður við inngöngu í ESB.