Heyskapur á Hesti í Andakíl. Ljósm. mm

Auka búnaðarþing ályktar gegn viðræðum við ESB

Auka búnaðarþing Bændasamtaka Íslands var haldið í Reykjavík í gær. Þar var samþykkt með þorra greiddra atkvæða að hagsmunir íslensks landbúnaðar væru að standa utan sameiginlegu landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Af þeim sökum leggst Búnaðarþing gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökum Íslands.