Fréttir

true

Skallagrímur gerði út um leikinn í fyrri hálfleik

Föstudaginn 17. júlí áttust við Skallagrímur og Afríka í tíundu umferð 5. deildar karla A-riðils á Íslandsmótinu í fótbolta. Leikurinn fór fram á Þróttaravellinum í Laugardal. Skallagrímur byrjaði leikinn af krafti og leiddi með þremur mörkum gegn engu þegar liðin gengu til leikhlés. Skallagrímur fór hamförum í upphafi leiks en Guðjón Andri Gunnarsson skoraði tvennu…Lesa meira

true

Fimm fallegir laxar á fjórum dögum

„Við félagarnir ákváðum að taka tvö samliggjandi holl í Hörðudalsá þetta sumarið, en við erum búnir að veiða í Hörðudalsá í mörg ár og alltaf er það jafn gaman,“ segir Sævar Jónsson blikksmiður á Akranesi sem var að koma ur Hörðudalsa í Dölum. Veiðifélagar hans voru þeir Rúdólf Jósefsson, Hörður Jónsson og Kristján Baldvinsson. „Þegar…Lesa meira

true

Gæti þornað um eftir miðja vikuna

Veðurspár eru nokkuð samhljóða um að frá því síðdegis á fimmtudaginn og fram yfir næstu helgi gæti hangið þurrt á Vesturlandi. Eftir langvarandi úrkomutíð það sem af er júlímánuði munu því bændur geta glaðst, en margir hverjir eiga eftir stóran hluta heyskapar. Frá því síðdegis á fimmtudaginn og fram á mánudag verða norðlægar áttir ríkjandi…Lesa meira

true

Breikka hluta Snæfellsnesvegar

Framkvæmdir við breikkun og styrkingu Snæfellsnesvegar á um sex kílómetra löngum vegarkafla frá Brúarhrauni að Hraunsmúla, ganga vel. Ástand þessa hluta vegarins hefur lengi verið mjög bágborið og þar hafa orðið alvarleg slys. Að jafnaði aka 2.450 bílar um veginn á sólarhring að sumri, en vetrarumferð er um þúsund bílar. Það er Borgarverk sem vinnur…Lesa meira

true

Bjóða út breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi

Vegagerðin auglýsti í liðinni viku útboð vegna breikkunar Hringvegarins frá Vallá á Kjalarnesi og að Hvalfjarðarvegi sunnan við Hvalfjarðargöngin. Þetta er síðari áfangi breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes en nokkurra ára seinkun hefur orðið á verkinu. Upphaflega stóð til að breikkun hringvegarins um Kjalarnes, á öllum kaflanum milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga, myndi ljúka árið 2023, samkvæmt…Lesa meira

true

Rifsþéla nemur land í Stykkishólmi

Róbert Arnar Stefánsson líffræðingur í Stykkishólmi greinir frá því á FB síðu sinni að ný, framandi og ágeng tegund hefur náð fótfestu í Stykkishólmi. Þetta er blaðvespan rifsþéla. „Lirfur hennar eru annáluð átvögl og elska stikkilsber og rifsber. Við erum með hvort tveggja í garðinum okkar og uppgötvuðum fyrir nokkrum dögum að þúsundir lirfa rifsþélunnar…Lesa meira

true

Dragnótarbátur dreginn til lands

Engan sakaði í dag þegar dragnótarbáturinn Grímsey ST-2 varð aflvana skammt utan hafnarinnar í Stykkishólmi og rak í átt að landi. Verið var að prufukeyra bátinn eftir að hafa verið í slipp, þegar bilun varð í gír. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út. Sex voru um borð í bátnum og í fyrstu var…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip væntanlegt á Skagann í fyrramálið

Um klukkan 8 í fyrramálið er von á skemmtiferðaskiptinu Le Bellot til Akraneshafnar. Þetta er önnur heimsókn skipsins í sumar, en sú fyrri var á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Að þessu sinni verður skipið lengur í höfninni en síðast, eða til klukkan 17.Lesa meira

true

Samþykkja útboðsgögn vegna nýs leikskóla

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afgreiddi á fundi sínum 9. júlí síðastliðinn hönnunar- og útboðsgögn vegna nýbyggingar fyrir leikskólann Skýjaborg í Melahverfi. Fól sveitarstjórn Umhverfis- og skipulagsdeild auk verkefnastjóra framkvæmda og eigna að hefja útboðsferli á grundvelli þeirra. Jafnframt fól sveitarstjórn Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja greiningarvinnu og frumathugun á skipulagi vegna nýs leikskóla í Krosslandi. Þessar tillögur…Lesa meira

true

Framlengja sérlausn um millilandaflug

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) og íslensk stjórnvöld hafa lýst sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausn Íslands vegna millilandaflugs, innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), um þrjú ár eða til ársins 2030. Tilkynningin kemur í kjölfar þess að framkvæmdastjórn ESB birti tillögur sínar um endurskoðun ETS kerfisins sem nú ganga til aðildarríkjanna og Evrópuþingsins. Í núgildandi ETS-löggjöf…Lesa meira