
Tvær leikskólabyggingar eru nú í undirbúningi í sveitarfélaginu; í Melahverfi og næst þar á eftir í Krosslandi. Ljósm. mm
Samþykkja útboðsgögn vegna nýs leikskóla
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afgreiddi á fundi sínum 9. júlí síðastliðinn hönnunar- og útboðsgögn vegna nýbyggingar fyrir leikskólann Skýjaborg í Melahverfi. Fól sveitarstjórn Umhverfis- og skipulagsdeild auk verkefnastjóra framkvæmda og eigna að hefja útboðsferli á grundvelli þeirra.