
Nú á að halda áfram með breikkun vegarins til norðurs frá þeim stað sem framkvæmdum lauk 2023. Ljósm. mm
Bjóða út breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi
Vegagerðin auglýsti í liðinni viku útboð vegna breikkunar Hringvegarins frá Vallá á Kjalarnesi og að Hvalfjarðarvegi sunnan við Hvalfjarðargöngin. Þetta er síðari áfangi breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes en nokkurra ára seinkun hefur orðið á verkinu. Upphaflega stóð til að breikkun hringvegarins um Kjalarnes, á öllum kaflanum milli Kollafjarðar og Hvalfjarðarganga, myndi ljúka árið 2023, samkvæmt aðgerðaáætlun fyrir tímabilið 2019 til 2023. Fyrri áfanganum, milli Kollafjarðar og Vallár, lauk sumarið 2023, einnig eftir seinkun, og var þá kynnt að seinni áfanginn yrði boðinn út það sama ár.