
Dragnótarbátur dreginn til lands
Engan sakaði í dag þegar dragnótarbáturinn Grímsey ST-2 varð aflvana skammt utan hafnarinnar í Stykkishólmi og rak í átt að landi. Verið var að prufukeyra bátinn eftir að hafa verið í slipp, þegar bilun varð í gír. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út. Sex voru um borð í bátnum og í fyrstu var talið að ankeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Bátar í grenndinni voru jafnframt beðnir um að halda á vettvang til aðstoðar. Björgin frá Rifi og björgunarskip frá Berserkjum í Stykkishólmi voru ræst út og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug einnig til Stykkishólms þar sem hún var til taks. Aðstæður á vettvangi voru góðar og ankeri fiskibátsins hélt honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi. Meðan þyrlan var til taks í Stykkishólmi var hún kölluð út vegna fjórhjólaslyss norðan Hólmavíkur. Þyrlan tók á loft frá Stykkishólmi á þriðja tímanum og var komin skömmu síðar á vettvang. Tveir voru fluttir með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi sem lenti þar laust fyrir klukkan fjögur.
Fyrr í dag annaðist þyrlusveitin einnig sjúkraflug vegna rútuslyss á Landmannaleið. Einn slasaður var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur.