Skallagrímur gerði út um leikinn í fyrri hálfleik

Föstudaginn 17. júlí áttust við Skallagrímur og Afríka í tíundu umferð 5. deildar karla A-riðils á Íslandsmótinu í fótbolta. Leikurinn fór fram á Þróttaravellinum í Laugardal. Skallagrímur byrjaði leikinn af krafti og leiddi með þremur mörkum gegn engu þegar liðin gengu til leikhlés.