Hörður, Sævar og Kristinn á bökkum Hörðudalsár.

Fimm fallegir laxar á fjórum dögum

„Við félagarnir ákváðum að taka tvö samliggjandi holl í Hörðudalsá þetta sumarið, en við erum búnir að veiða í Hörðudalsá í mörg ár og alltaf er það jafn gaman,“ segir Sævar Jónsson blikksmiður á Akranesi sem var að koma ur Hörðudalsa í Dölum. Veiðifélagar hans voru þeir Rúdólf Jósefsson, Hörður Jónsson og Kristján Baldvinsson. „Þegar við lögðum af stað í þessa ferð var mikil tilhlökkun; góð spá, rigning og lítilsháttar vindur. Kjöraðstæður til veiða. Áin var búin að vera í miklum ham dagana á undan; lituð og óveiðanleg og það má því segja að það hafi hlakkað í okkur félögunum. Þetta minnti okkur á þær aðstæður sem við lentum í árið 2024 þegar við veiddum 25 laxa á tveimur dögum, einmitt í kjólfar flóða og stórstaums.“