Fréttir

true

Fjólubláir bekkir við Brákarhlíð

Í sveitarfélögum víða um land má finna fjólubláa bekki merkta Alzheimersamtökunum. Þeim er ætlað að vekja athygli á heilabilun og stuðla að aukinni fræðslu og opnari umræðu um málefnið í samfélaginu. Fjólublár er alþjóðlegur litur vitundarvakningar um heilabilun og hefur því orðið tákn um fræðslu, skilning og stuðning við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.…Lesa meira

true

Slitnir strengir starta Írskum dögum

Tónleikar fiðlusveitarinnar Slitinna strengja munu að þessu sinni marka upphaf Írskra daga, bæjarhátíðar á Akranesi. Tónleikarnir verða haldnir í Guinnes tjaldinu á hafnarsvæðinu þriðjudagskvöldið 30. júní klukkan 20. Ragnar Skúlason er hljómsveitarstjóri Slitinna strengja en sveitin var upphaflega stofnuð af hópi fyrrum fiðlunemenda hans við Tónlistarskólann á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Ragnari, en…Lesa meira

true

Lágur þrýsingur á neysluvatni í kvöld

Að kvöldi 22. júní verður nýr búnaður tekinn í notkun á Akranesi Veitur hafa lokið endurnýjun lýsingartækja fyrir neysluvatn á Akranesi og nú er komið að því að taka nýju tækin í notkun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að til að koma nýju tækjunum í virkni þarf tímabundið að minnka þrýsting á köldu vatni…Lesa meira

true

Knattspyrnufélagið Kári gerði góða ferð í Voga

Föstudaginn 19. júní áttust við Kári og Þróttur V á Vogaídýfuvellinum á Vatnsleysuströnd í 2. deild karla í knattspyrnu, en þetta var 9. umferð deildarinnar. Káramenn hófu leika af krafti og á 19. mínútu var Finnbogi Laxdal búinn að skora fyrsta mark leiksins og leiddu Káramenn með einu marki eftir fyrri hálfleik. Mörkin komu síðan…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning til styrktar Grundarfjarðarkirkju

Sigríður Diljá Guðmundsdóttir, kvenfélagskona og bóndi í Nýjubúð, hélt ljósmyndasýningu í Samkomuhúsi Grundarfjarðar í síðustu viku. Sýningin var opnuð á þjóðhátíðardaginn og stóð fram yfir helgina. Myndirnar voru til sölu og rann allur ágóði til Grundarfjarðarkirkju þar sem verið er að safna fyrir nýju þaki. Einnig var hægt að kaupa dýrindis vöfflur og kaffi til…Lesa meira

true

Tvær lúxussnekkjur í heimsókn í Grundarfirði

Grundfirðingar ráku upp stór augu þegar þeir litu til hafs í gærkvöldi þegar snekkjurnar Emotional og After You sigldu inn lygnan fjörðinn og lögðust við ankeri rétt utan við bæinn. Ekki hefur útsýnið spillt upplifun áhafnar skipanna en þær eru báðar í eigu sama eiganda. Emotional er skráð á Marshall eyjum og er 53 metrar…Lesa meira

true

Stofnun atvinnuveganna varð að lögum

Alþingi samþykkti á lokadegi þinghalds frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um nýja Stofnun atvinnuveganna. Lögin munu taka gildi 1. janúar 2027 og tekur stofnunin þá til starfa. Með lögum um Stofnun atvinnuveganna verður til ný ríkisstofnun sem mun sinna þeim verkefnum sem áður voru hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, auk þess sem þau verkefni…Lesa meira

true

Sindri Karl þrefaldur Íslandsmeistari

Sindri Karl Sigurjónsson hlaupari úr UMSB gerði heldur betur góða ferð til Akureyrar um helgina, en þar fór fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára. Stefán Gíslasaon fjallar um afrek Sindra Karls og segir hann hafa keppt í 800, 1500 og 3000 m hlaupum í flokki 16-17 ára og unnið allar greinarnar með yfirburðum.…Lesa meira

true

Fyrsta ítalska matarhátíðin var haldin í Búðardal

Það var ósvikið ítalska yfirbragðið á matarhátíðinni sem haldin var í Búðardal föstudaginn 12. júní síðastliðinn. Það var hópur Ítala sem búsettir eru í Búðardal sem stóð að viðburðinum en til þess höfðu þau einnig hlotið stuðning úr sjóði Dalaauðs. Fyrst stóð til að hátíðin yrði á Vínlandssetrinu í Búðardal en aðsóknin reyndist slík að…Lesa meira

true

Drög að byggðaáætlun til umsagnar

Innviðaráðuneytið hefur birt hvítbók um byggðamál í samráðsgátt stjórnvalda. Hvítbókin hefur að geyma drög að stefnumótandi byggðaáætlun til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Umsagnarfrestur er til og með 18. ágúst 2026. Í kynningu ráðuneytisins segir: Samráð og samhæfing eru leiðarljós við endurskoðun byggðaáætlunar. „Samráðið hefur meðal annars falist í því að haldnir voru…Lesa meira