
Aðstandendur fyrstu ítölsku matarhátíðarinnar voru að vonum hæstánægðir með þær móttökur og undirtektir sem framtak þeirra fékk. Ítalarnir starfa víðsvegar í Búðardal og hafa tekið virkan þátt í samfélaginu. Texti og myndir: Steinþór Logi
Fyrsta ítalska matarhátíðin var haldin í Búðardal
Það var ósvikið ítalska yfirbragðið á matarhátíðinni sem haldin var í Búðardal föstudaginn 12. júní síðastliðinn. Það var hópur Ítala sem búsettir eru í Búðardal sem stóð að viðburðinum en til þess höfðu þau einnig hlotið stuðning úr sjóði Dalaauðs. Fyrst stóð til að hátíðin yrði á Vínlandssetrinu í Búðardal en aðsóknin reyndist slík að flytja þurfti hana í félagsheimilið Dalabúð sem raunar fylltist einnig. Hátt í 200 manns sóttu viðburðinn.