
Í apríl á þessu ári voru 13.500 atvinnulausir í landinu, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 5,8%, hlutfall starfandi var 75,4% og atvinnuþátttaka 80%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,5 prósentustig á milli mars og apríl 2026, hlutfall starfandi stóð í stað og atvinnuþátttaka dróst saman um 0,5 prósentustig.Lesa meira








