
Vegfarendur um Borgafjarðarbrú geta til 2. júní næstkomandi búist við að umferðarstýring verði yfir brúna. Í gangi er viðhaldsvinna. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna aðgát.Lesa meira

Vegfarendur um Borgafjarðarbrú geta til 2. júní næstkomandi búist við að umferðarstýring verði yfir brúna. Í gangi er viðhaldsvinna. Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna aðgát.Lesa meira

Rúmum átta tímum eftir að björgunarskipið Björg í Rifi lagðist að bryggju í Rifshöfn í gær, eftir að hafa dregið fiskiskipið Ólaf Bjarnason til Ólafsvíkur, var áhöfn skipsins boðuð út á ný. Aftur var fiskiskip af svipaðri stærð og hið fyrra í vandræðum á Breiðafirði, en aðskotahlutur hafði flækst í skrúfu skipsins. Útkallið barst um…Lesa meira

Í vikunni sem leið voru 77 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 910 ökumenn voru auk þess myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þrír voru stöðvaðir og kærðir fyrir að nota farsíma við akstur. Lögregla…Lesa meira

Í dag, miðvikudaginn 13. maí, eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni bjóðum við íbúum Borgarbyggðar í afmæliskaffi og köku frá kl. 15:30-17:30. Einnig gefst gestum kostur á að skoða sýningarnar um Landnámið og Egils sögu sér að kostnaðarlausu. Aðal flaggskip Landnámssetursins eru sýningarnar um landnámið og Egilssögu en…Lesa meira

Um hádegisbil í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út, en dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason SH hafði fengið tógið í skrúfuna. Skipið var statt nærri landi við Klettsvík austan við Ólafsvík og var því útkallið á forgangi. Vel gekk að koma tóg á milli skipanna og var komið til hafnar á fjórða tímanum síðdegis. Engan…Lesa meira

Síðasti fundur núverandi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar var haldinn á fimmtudaginn. Af því tilefni kom forseti bæjarstjórnar með eftirfarandi bókun: „Bæjarfulltrúar D-listans vilja við lok þessa kjörtímabils færa bæjarfulltrúum J-listans einlægar þakkir fyrir afar gott samstarf á liðnum árum í bæjarstjórn. Meiri- og minnihluti hefur meðal annars unnið sameiginlega að fjárhagsáætlanagerð á kjörtímabilinu og lítill ágreiningur hefur…Lesa meira

Í sveitarfélaginu Dalabyggð verður viðhaft persónukjör í kjöri til sveitarstjórnar í ljósi þess að enginn framboðslisti var lagður fram. Alls hafa fjórir núverandi og fyrrverandi sveitarstjórnarfulltrúar skorast undan endurkjöri á laugardaginn. Síðastliðinn fimmtudag var haldinn kynningarfundur í Dalabúð þar sem íbúar gátu kynnt sig til leiks ef þeir hafa áhuga á að gefa kost á…Lesa meira

Þessa dagana róa þeir stíft sem hafa leyfi til strandveiða. Frá maí og fram í ágúst eru veiðar leyfðar frá mánudögum til fimmtudaga. Svo er annað mál hvort veiðiheimildir til strandveiða dugi nema eitthvað fram í júlímánuð. Að óbreyttu verður það svo. Meðfylgjandi myndir tók Andri Ottó Kristinsson af Bergvini Sævari Guðmundssyni á Sif SH-132.…Lesa meira

Nýverið voru tíu nemendur útskrifaðir úr grunnnámi Stóriðjuskóla Norðuráls. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2012 og fram til þessa útskrifað 197 nemendur. Norðurál er í samstarfi við Símenntun á Vesturlandi og Fjölbrautaskóla Vesturlands um námið, en auk þess koma fjölmargir sérfræðingar og stjórnendur Norðuráls að kennslunni.Lesa meira

Garðyrkjudeild Akraneskaupstaðar hefur fest kaup á nýjum sláttutraktor. Traktorinn hefur nú þegar verið prufukeyrður og kemur afar vel út. Fyrsti sláttur ársins var mánudaginn 4. maí en þá var gras slegið á nokkrum hringtorgum. Daníel Valdimarsson starfsmaður garðyrkjudeildarinnar tók gripinn til kostanna og reyndist hann mjög vel að hans sögn. „Nú verður hægt að slá…Lesa meira