Skipin á leið til hafnar. Ljósm. af

Fékk tógið í skrúfuna og var dreginn í land

Um hádegisbil í dag var björgunarskipið Björg í Rifi kallað út, en dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason SH hafði fengið tógið í skrúfuna. Skipið var statt nærri landi við Klettsvík austan við Ólafsvík og var því útkallið á forgangi. Vel gekk að koma tóg á milli skipanna og var komið til hafnar á fjórða tímanum síðdegis. Engan sakaði og allt gekk vel.