
Landnámssetrið er 20 ára í dag
Í dag, miðvikudaginn 13. maí, eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni bjóðum við íbúum Borgarbyggðar í afmæliskaffi og köku frá kl. 15:30-17:30. Einnig gefst gestum kostur á að skoða sýningarnar um Landnámið og Egils sögu sér að kostnaðarlausu.
Aðal flaggskip Landnámssetursins eru sýningarnar um landnámið og Egilssögu en við opnunina var einnig frumsýndur einleikur Benedikts Erlingssonar Mr. Skallagrímsson sem átti eftir að slá rækilega í gegn. Sýningarnar urðu hátt í 300 og Benedikt fékk Grímu verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki og fyrir besta handrit. Auk þess var sýningin tilnefnd sem besta leiksýning ársins. Leikstjóri var sænski leikstjórinn Peter Engkvist.
Allar þessar sýningar eru til húsa í gömlu pakkhúsi sem gert var sérstaklega upp af þessu tilefni. Kjallarinn var grafinn út og þar er Egils sýningin – Landnámssýningin er á miðhæðinni en leiksýningarnar sem nú skipta tugum eru á pakkhúsloftinu sem við köllum Söguloft. Byggð var glæsileg tengibygging milli Pakkhússins og veitingastaðarins Búðarkletts en þetta eru elstu húsin í Borgarnesi.
Langflestir gestanna sem skoða Landnáms- og Egilssýninguna eru erlendir ferðamenn. En þó fáum við oft íslenska skólahópa og fjölskyldur í heimsókn. Farið er í gegnum sýningarnar með hljóðleiðsögn sem til er á 15 tungumálum auk sérstakrar barnaleiðsagnar á íslensku.
Eins og áður sagði skipta nú sýningarnar á Söguloftinu tugum. Þetta eru nær alltaf einleikir þar sem höfundurinn flytur sitt eigið efni. Í kjölfar Mr. Skallagrímssonar kom Brynhildur Guðjónsdóttir með Brák sem einnig fékk fádæma góðar viðtökur og sömu tilnefningar og Grímuverðlaun og Mr. Skallagrímsson. Rithöfundarnir Einar Kárason og Vilborg Davíðsdóttir og Gísli Einarsson, eiga fleiri en eina sýningu á Söguloftinu en einnig hafa tónlistarmennirnir KK, Gunnar Þórðarson og Egill Ólafsson stigið á stokk, sagt sögur sínar með tónlist svo aðeins fáir séu nefndir. Nýjasta frumsýning okkar er svo Salka – ástin og dauðinn eftir og í flutningi Unnar Aspar Stefánsdóttur og í leikstjórn Björns Thors. Sýningin er samstarfsverkefni Landnámsseturs og Þjóðleikhúss og nýtur gífurlegra vinsælda.
En það er óhætt að segja að velgengni Mr. Skallagrímsson eigi hvað mestan þátt í að koma Söguloftinu á kortið meðal Íslendinga. Í tilefni af þessum 20 ára tímamótum eru þeir félagar komnir aftur og munu endurfrumsýna Mr. Skallagrímsson með hátíðarsýningu föstudaginn 15. maí kl. 20. Á laugardaginn er boðið til móttöku kl. 16 þar sem Voices Thules mun koma fram og kl. 17 frumsýnum við Mr. Skallagrímsson. Sýningum verður svo haldið áfram en uppselt er á allar sýningar í maí en laus sæti í júní. Við viljum þakka öllu því góða fólki sem komið hefur að því að gera Landnámssetrið að því sem það er í dag – góður staður til að koma á og njóta samvista við vini og vandamenn.
Sirrý og Kjartan
