
Nóg að gera við löggæslustörf
Í vikunni sem leið voru 77 ökumenn stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. 910 ökumenn voru auk þess myndaðir af hraðamyndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Fjórir ökumenn voru handteknir, grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þrír voru stöðvaðir og kærðir fyrir að nota farsíma við akstur. Lögregla fjarlægði skráningarmerki af fjórum ökutækjum, vegna vanrækslu á að færa þau til skoðunar. 16 eigendur ökutækja voru sektaðir vegna lagningar ökutækjanna. Ýmist var þessum ökutækjum lagt öfugt miðað við akstursstefnu eða þá að þeim hafi verið lagt þannig að þau valdi óþægindum eða hættu fyrir umferð. Þrír voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiðar.