Fréttir

true

Fyrsta loðnan komin á Akranes

Venus NS-150, uppsjávarveiðiskip Brims, kom snemma í morgun með fyrsta loðnufarm vertíðarinnar til vinnslu á Akranesi. Nú er verið að landa 1500 tonnum úr skipinu. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns verður loðnin skorin á Akranesi en ekið með hrognin til frystingar á Vopnafirði.Lesa meira

true

Dauðar æðarkollur í Akraneshöfn

Í gærmorgun urðu árrisulir einstaklingar varir við fimm dauðar æðarkollur í Akraneshöfn. Lögreglu var tilkynnt um fuglana en síðan tekur við lögbundið ferli að Matvælastofnun er látin vita. Ekki liggur fyrir hvort kollurnar hafi drepist vegna fuglaflensku eða af öðrum orsökum. Á meðfylgjandi mynd var eftirlifandi æðarkollur í Akraneshöfn í gærdag.Lesa meira

true

Íbúahreyfingin fékk fimmtíu íbúa á undirbúningsfund

„Ég væri ánægður ef að minnsta kosti þrír listar kepptu um hylli kjósenda í vor í Hvalfjarðarsveit,“ segir Áskell Þórisson, einn þriggja sem stóðu fyrir opnum fundi um sveitarstjórnarkosningar í Hvalfjarðarsveit síðastliðinn laugardag. Fundurinn var haldinn á Hlöðum og mættu þar um fimmtíu íbúar. „Okkur fannst það vera samfélagsleg skylda okkar að sjá til þess…Lesa meira

true

Andlát – Davíð Oddsson ritstjóri og fv. forsætisráðherra

Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra er látinn, 78 ára að aldri. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. Foreldrar hans voru Oddur Ólafsson læknir og Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir. Davíð var einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins um áratugaskeið. Hann var kjörinn í borgarstjórn 1974 og sat þar til ársins 1994, og var borgarstjóri 1982-1991. Hann…Lesa meira

true

Snæfellskonur með nauman sigur

Njardvík-B tók á móti Snæfelli í leik í fyrstu deild kvenna í körfu á laugardaginn. Leikar fóru þannig að Snæfell fór með sigur af hólmi, með minnsta mun: 58-57. Segja má að heimakonur í Njarðvík hafi átt fyrsta leikhluta en eftir hann leiddu þær með 15 stigum gegn sjö. Annar leikhluti var hins vegar gestanna…Lesa meira

true

Íþróttamiðstöðin í Búðardal formlega tekin í notkun – myndasyrpa

Það var ósvikin hátíðarstemning í Búðardal í gær þegar ný og glæsileg íþróttamiðstöð var formlega vígð. Dalabyggð bauð til veislu, ávörp voru flutt, sóknarpresturinn blessaði mannvirkin og boðið var upp á risastóra afmælistertu. Talið er að um fimm hundruð gestir á öllum aldri hafi verið viðstaddir. Það var svo Halla Tómasdóttir forseti Íslands sem klippti…Lesa meira

true

Gísla Jóns siglt til heimahafnar á Akranesi

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir viðræður milli Björgunarfélags Akraness og Björgunarbátasjóðs Vestfjarða um kaup á björgunarskipinu Gísla Jóns. Samningur um kaupin náðist í liðinni viku og hélt vaskur hópur björgunarfólks vestur á Ísafjörð, gekk frá kaupsamningi og sigldi skipinu heim. „Við ákváðum að sigla áleiðis heim á laugardegi, en við gömlu sveitamennirnir bindum tryggð við…Lesa meira

true

Nýjungar í Axelsbúð – þjónusta við rafmagnshjól

Við Merkigerði 2 á Akranesi rekur Axel Gústafsson verslun ásamt reiðhjólaverkstæði hvar hann hefur staðið vaktina samviskusamlega í 18 ár, en Axelsbúð er reist á gömlum merg eins og flestir Skagamenn þekkja. Það eru ófáir hjóleigendur, ungir sem aldnir, sem hafa látið nostra við „fáka“ sína hjá Axeli í gegnum tíðina. Mikil gróska hefur verið…Lesa meira

true

Tillögur starfshóps til að auka að nýju strandsiglingar

Auknar strandflutningar munu auka öryggi á þjóðvegum landsins, draga úr kostnaði ríkisins við þjóðvegakerfið vegna þungaflutninga og styðja við aðgerðir í loftslagsmálum. Þetta er niðurstaða skýrslu starfshóps um strandsiglingar undir yfirskriftinni „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur fengið skýrsluna afhenta og verða tillögur hópsins nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu.…Lesa meira

true

Mikil fækkun gistinátta í janúar

Gistinóttum á hótelum á landinu fækkaði um 7% í janúar samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Alls voru gistinæturnar tæplega 274.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 294.000 á sama tíma árið 2025. Fækkun gistinátta má að stórum hluta rekja til samdráttar á höfuðborgarsvæðinu en þar fækkaði gistinóttum um 10,8% eða tæplega 20.500. Á Austurlandi…Lesa meira