
Axel og Ingvar í Axelsbúð. Texti og mynd: ÓHK
Nýjungar í Axelsbúð – þjónusta við rafmagnshjól
Við Merkigerði 2 á Akranesi rekur Axel Gústafsson verslun ásamt reiðhjólaverkstæði hvar hann hefur staðið vaktina samviskusamlega í 18 ár, en Axelsbúð er reist á gömlum merg eins og flestir Skagamenn þekkja. Það eru ófáir hjóleigendur, ungir sem aldnir, sem hafa látið nostra við „fáka“ sína hjá Axeli í gegnum tíðina.