Starfshópurinn afhendir innviðaráðherra skýrslu sína. Frá vinstri eru Fannar, Benedikt, Magnús, Eyjólfur, Sóley, Jón Gunnar og Katrín. Ljósm. Stjórnarráðið

Tillögur starfshóps til að auka að nýju strandsiglingar

Auknar strandflutningar munu auka öryggi á þjóðvegum landsins, draga úr kostnaði ríkisins við þjóðvegakerfið vegna þungaflutninga og styðja við aðgerðir í loftslagsmálum. Þetta er niðurstaða skýrslu starfshóps um strandsiglingar undir yfirskriftinni „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur fengið skýrsluna afhenta og verða tillögur hópsins nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu.