
Hvatningarverðlaun CIE Tours til framúrskarandi fyrirtækja í ferðaþjónustu voru veitt við hátíðlega athöfn í gær. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt hér á landi en þau eru einnig veitt árlega í Bretlandi og á Írlandi. Verðlaun þessi byggja á umsögnum frá um þúsund ferðamönnum sem koma árlega til Íslands á vegum CIE Tours, að mestu frá Bandaríkjunum.…Lesa meira








