Fréttir

true

Þakkar fyrir yndislegt líf með samnefndum tónleikum

Sunnudaginn 19. nóvember næstkomandi klukkan 16:00 verða í Langholtskirkju í Reykjavík haldnir áhugaverðir tónleikar sem unnendur sönglistar ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Þar munu ellefu kórar og einsöngvarar flytja fjölbreytta söngdagskrá. Allur ágóði af sölu aðgöngumiða á tónleikana rennur til styrktar Umhyggju, félags langveikra barna. Hvatamaður að tónleikunum og skipulagningu þeirra er…Lesa meira

true

Fanntófell kaupir nýtt iðnaðarhúsnæði

Laugardaginn 11.11. á slaginu klukkan 11:11 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju iðnaðarhúsi Fanntófells ehf. við Gylfaflöt í Grafarvogi. Fanntófell er innréttingafyrirtæki sem upphaflega var stofnað í Reykholti í Borgarfirði fyrir þrjátíu árum og er enn í dag rekið af Borgfirðingum, öðrum stofnandanum og bróður hans. Það eru bræðurnir Sigurður Bragi og Jóhannes Sigurðssynir sem…Lesa meira

true

Ejub verður áfram með Víking Ólafsvík

Ejub Purisevic hefur skrifað undir nýjan samning við Víking Ólafsvík um þjálfun karlaliðs félagsins. Samningurinn nær til tveggja ára og verður Ejub því við stjórnvölinn þegar Víkingur mætir til leiks í 1. deild karla næsta sumar. „Ejub hefur stýrt liði Víkings með eftirtektarverðum árangri um árabil og er það félaginu gleðiefni að hafa tryggt sér…Lesa meira

true

Ólafsvíkurkirkja fimmtíu ára

Sunnudaginn 19. nóvember verða rétt fimmtíu ár liðin frá vígslu Ólafsvíkurkirkju. Hátíðarguðsþjónusta verður í kirkjunni á sjálfan afmælisdaginn og dagskrá í Klifi að henni lokinni. Ákveðið var strax á síðasta ári að minnast tímamótanna með ýmsum hætti á afmælisárinu. Við hátíðarguðsþjónustuna á sunnudaginn prédikar Agnes M Sigurðardóttir biskup Íslands og sóknarpresturinn séra Óskar Ingi Ingason…Lesa meira

true

Samverustund eldri borgara næstkomandi sunnudag

Sunnudaginn 19. nóvember ætla félagsmenn í félögum eldri borgara á Akranesi, Borgarnesi og nágrenni að halda sameiginlega samverustund. Að lokinni guðsþjónustu í Akraneskirkju, sem hefst klukkan 14, verða kaffiveitingar í sal FEBAN að Kirkjubraut 40 á Akranesi. -fréttatilkynningLesa meira

true

Úr dagbók lögreglu

Lögreglan á Vesturlandi hafði í liðinni viku afskipti af 14 ökumönnum sem óku of hratt. Auk þess voru 267 ökumenn myndaðir í hraðamyndavélum á Vesturlandsvegi frá 6. til 12. nóvember. Þrír ökumenn voru teknir af lögreglunni undir áhrifum fíkniefna. Sex umferðaóhöpp urðu í umdæminu. Í tveimur þeirra var ekið á umferðaskilti, ein bifreið fór útaf…Lesa meira

true

Björn Bergmann tilnefndur

Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er einn fjögurra knattspyrnumanna sem kemur til greina sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni. Björn er 26 ára gamall sóknarmaður og leikur með Molde. Hann hefur spilað afar vel með liðinu á tímabilinu og er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar með 14 mörk í 25 leikjum. Molde situr í öðru sæti deildarinnar…Lesa meira

true

Byrjað að undirbúa gervigrasvöllinn í Ólafsvík

Síðastliðinn föstudag hófust framkvæmdir á Ólafsvíkurvelli þar sem til stendur að leggja völlinn gervigrasi. Það var TS vélaleiga sem hóf framkvæmdir með því að ýta efni saman í hauga sem síðan er mokað á bíla. Ætlunin var að nýta grasið en hætt var við það þar sem þökurnar reyndust of lausar í sér. Þess má…Lesa meira

true

Breiðfirðingakórinn í Reykjavík fagnar tuttugu ára afmæli

Á haustmánuðum 1997 lét Átthagafélag Breiðfirðinga þann draum rætast að koma á laggirnar blönduðum kór. Áður hafði starfað kór félagsins í fimmtán ár frá árinu 1940. Liðu því 42 ár á milli kóra. „Fyrir tuttugu árum var saman kominn 58 manna hópur sem hafði áhuga á að taka þátt og kom saman ásamt kórstjóra. Mátti…Lesa meira

true

Fjölmenningarhátíð í Frystiklefanum á laugardaginn

Átthagastofa Snæfellbæjar, í samstarfi við Svæðisgarð Snæfellsnes, Grunnskóla Snæfellsbæjar, leikskóla Snæfellsbæjar, Símenntunarstöð Vesturlands og Frystiklefann, stendur fyrir fjölmenningarhátíð sem haldin verður í Frystiklefanum á laugardaginn, 21. október. Boðið verður upp á mat, fræðslu og skemmtidagskrá frá klukkan 14-16. „Tilgangur hátíðarinnar er að fólk geti komið og kynnt sína menningu og fengið að kynnast menningu annarra.…Lesa meira