Fréttir

true

Skallagrímur sigraði Vestra í fjörugum leik

Skallagrímur tók á móti Vestra í toppslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Fyrir leikinn var Skallagrímur í öðru sæti en Vestri í því þriðja. Borgnesingar biðu leiksins með nokkurri eftirvæntingu því Aaron Parks, nýr erlendur leikmaður liðsins, lék þarna sinn fyrsta leik með Skallagrími. Leikurinn var fjörugur og spennandi en lauk að lokum…Lesa meira

true

Leigufélagið Bjarg fær þrjár fjölbýlishúsalóðir á Akranesi

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur staðfest viljayfirlýsingu um samstarf við Bjarg íbúðafélag um uppbyggingu þriggja fjölbýlishúsa fyrir leiguíbúðir á Akranesi í samræmi við ákvæði laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir. Bjarg leigufélag er í eigu BSRB og ASÍ og er tilgangur þess að byggja, eftir danskri fyrirmynd, íbúðarhúsnæði sem leigt er til langs tíma á viðráðanlegu verði,…Lesa meira

true

Friðheimar eru handhafi nýsköpunarverðlauna SAF

Friðheimar í Bláskógabyggð eru handhafi nýsköpunarverðlauna Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2017. Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í fjórtánda sinn sem SAF veita nýsköpunarverðlaun samstakanna en þetta árið bárust…Lesa meira

true

Minningar úr héraðsskólum

Þjóðminjasafn Íslands hefur sent út spurningaskrá um minningar úr héraðsskólum og öðrum heimavistarskólum til sveita á unglingastigi. Söfnunin byggir eingöngu á frásögnum fyrrverandi nemenda og er því fyrst og fremst verið leita eftir minningum fólks. Spurningaskráin er hluti af þjóðháttasöfnun Þjóðminjasafns Íslands sem staðið hefur óslitið síðan 1960. Spurt er um hefðir, félagslíf, ýmisleg samskipti…Lesa meira

true

Sungu fyrir íbúa á Jaðri

Það er alltaf líf og fjör hjá krökkunum í Barna- og skólakór Snæfellsbæjar. Æfingar eru einu sinni í viku hjá þeim undir stjórn Veronicu Osterhammer kórstjóra og Nönnu Aðalheiði Þórðardóttur undirleikara. Kórinn kemur fram við ýmis tækifæri og gerir margt skemmtilegt. Mánudaginn 30. október fór hópurinn á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar þar sem þeir æfðu…Lesa meira

true

Góð byrjun Valdísar Þóru í Kína – í toppbaráttunni

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, er í toppbaráttunni á Sanya Ladies Open mótinu í Kína eftir að einn hringur hefur verið spilaður. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröðinni í golfi, sterkustu mótaröð Evrópu. Valdís lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari og er jöfn í 2. sæti þegar fréttin var…Lesa meira

true

Kynna Áfangastaðaáætlun DMP – samstarfsverkefni um ábyrga þróun ferðamála

Markaðsstofa Vesturlands hefur ásamt öðrum markaðsstofum landshlutanna skrifað undir samstarfssamning við Ferðamálastofu og Stjórnstöð ferðamála um að vinna heildstæða stefnumarkandi stjórnunaráætlun ferðamála fyrir sitt svæði eða svokallaðar DMP áætlun (Destination Managment Plan). Ferðamálastofa gefur forskrift að verkefninu auk þess sem skoskur ráðgjafi kemur að því á þeirra vegum. Heima í héraði er tíu manna stýrihópur…Lesa meira

true

Á leið á Íslandsmeistaramót í 25m laug

Undanfarna daga hefur undirbúningur fyrir Íslandsmeistaramót í 25m laug staðið sem hæst hjá Sundfélagi Akraness, en mótið hefst í dag og lýkur á sunnudaginn. Sundfólkið hefur æft vel í haust og þetta árið eru ellefu sundmenn sem munu taka þátt en það eru: Ágúst Júlíusson, Sævar Berg Sigurðsson, Atli Vikar Ingimundarson, Sindri Andreas, Erlend Magnússon,…Lesa meira

true

Brimrún Eir með gull fyrir ÍA

Fyrsta mót á Íslandsmeistara-mótaröðinni í klifri lauk um helgina með úrslitum í flokki 16-19 ára og 20+. Í 16-19 ára flokki sigraði Brimrún Eir Óðinsdóttir eftir spennandi bráðabana á móti keppanda frá Klifurfélagi Reykjavíkur. Landaði hún þar með þriðju medalíu ÍA um helgina. Fyrr hafði Sylvía Þórðardóttir landað silfri í 11-12 ára flokki og Hjalti…Lesa meira

true

Stærsta árgangamót ÍA til þessa

Árgangamót ÍA var haldið sjöunda sinni í Akraneshöllinni síðastliðinn laugardag. Mótið hefur vaxið ár frá ári og hefur aldrei verið stærra. Að þessu sinni skráðu sig til leiks meira en 250 keppendur og leikið var í þremur deildum; lávarðadeild karla þar sem leikmenn 40 ára og eldri spiluðu í tveimur riðlum, ungliðadeild karla þar sem…Lesa meira