Fréttir

true

Skagamenn töpuðu tólftu viðureign sinni við FH í röð

Laugardaginn 22. júlí hófst tólfta umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu með leik ÍA og FH í Kaplakrika. Fyrir leikinn voru Hafnfirðingar í fjórða sæti með sautján stig en Skagamenn í botnsætinu með níu stig. FH hefur haft býsna sterkt tak á Skagamönnum síðastliðinn áratug en Skagamenn hafa tapað öllum tólf viðureignum liðanna í efstu deild…Lesa meira

true

Dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda í siglingum

Af tilefni fundar Alþjóða siglingamálastofnunarinnar dagana 24.-28. júlí sl. skora undirrituð sveitarfélög, stofnanir og frjáls félagasamtök á íslensk stjórnvöld og fulltrúa aðildarríkja hjá Alþjóða siglingamálastofnuninni (IMO) að grípa nú þegar til markvissra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna siglinga, einkum í norðurhöfum. „Rannsóknir sýna að sýrustig sjávar eykst stöðugt vegna síaukinnar losunar koltvísýrings…Lesa meira

true

Hreinsuðu upp olíu af Samkaupsplani

Slökkvilið Grundarfjarðar var kallað út í gær þar sem töluvert af olíu var á planinu við verslun Samkaups. Svo virðist sem stór rúta eða flutningabíll hafi misst olíu með þessum afleiðingum. Slökkviliðið brást skjótt við og náði að hreinsa upp megnið af olíunni á svæðinu.Lesa meira

true

Makríll veiðist fyrir austan og sunnan land

Víkingur AK kom til Vopnafjarðar á föstudagskvöldið með rétt tæplega 600 tonn af makríl sem fékkst á miðunum suðaustan við landið. Að sögn Hjalta Einarssonar á Víkingi hefur makríllinn veiðst jafnt fyrir austan sem vestan, en skip frá Vestmannaeyjum og tveir togarar höfðu m.a. verið að makrílveiðum í Grindavíkurdjúpi. „Við vorum að veiðum á Papagrunni,…Lesa meira

true

Borgfirðingar sigruðu í annarri púttkeppni sumarsins

Annar hluti keppni eldri borgara frá Akranesi og Borgarbyggðar í pútti fór fram á golfvellinum Nesi í Reykholtsdal síðastliðinn fimmtudag. Fjörutíu keppendur mættu til leiks, en leikið var í blíðskaparveðri. „Við endurskoðun fyrsta hluta keppninnar á Akranesi 29. júní sl. kom í ljós að hún fór 519:520 Borgarbyggð í vil,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum…Lesa meira

true

Stugguðu grindhvölum frá Ólafsvíkurhöfn

Um hádegisbiið í gær sást til grindhvalavöðu fyrir utan höfnina í Ólafsvík. Stefndu hvalirnir inn í höfnina og var því óskað eftir aðstoð frá björgunarsveitinni Lífsbjörgu við að koma þeim frá aftur. Veðrið var fremur slæmt en þó gekk vel að koma hvölunum aftur áleiðis til hafs. Ekki er langt síðan önnur hvalavaða kom inn…Lesa meira

true

Valdís Þóra Íslandsmeistari í höggleik 2017

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi stóð uppi sem sigurvegari á Íslandsmótinu í höggleik sem fór fram á Hvaleyrarvelli og lauk í dag. Valdís Þóra lék hringina fjóra á 10 höggum yfir pari og sigraði að lokum með tveggja högga mun eftir æsispennandi einvígi við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Valdís Þóra hóf lokadaginn…Lesa meira

true

Hvasst á Snæfellsnesi

Veðrið hefur ekki leikið við íbúa Snæfellsness síðustu dagana og um helgina var engu líkara en fyrstu haustlægðirnar væru mættar. Rafmagnstruflanir urðu á bæjum innan við Ólafsvík vegna þess að staur brotnaði. Einnig fuku fiskikör til á bryggjunni í Ólafsvík. Ekki urðu þó neinar skemmdir eða slys eftir því sem vitað er. Hvassast var í…Lesa meira

true

Óska eftir tilboðum í niðurrif Sementesverksmiðjunnar

Óskað er eftir tilboðum í niðurrif bygginga og búnaðar Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Mannvirkin sem stendur til að rífa eru 16 talsins og skv. útboði er verktíminn til 20. ágúst 2018. Kynningarfundur verður á verkstað fimmtudaginn 27. júlí næstkomandi kl. 9:30. Tilboðin verða opnuð í ráðhúsi Akranskaupstaðar 30. ágúst næstkomandi.Lesa meira