Fréttir

true

Víkingur mætir Val í kvöld

Víkingur Ólafsvík hefur verið á góðu skriði í Pepsideildinni að undanförnu. Liðið hefur sigrað þrjá af síðustu fjórum leikjum, gegn Stjörnunni, FH og ÍA. Víkingur á heimaleik gegn Val í kvöld og getur með sigri í þeim leik getur Víkingur komist í fimmta sæti deildarinnar og þar með í baráttuna um sæti í Evrópudeildinni að…Lesa meira

true

Hafna því að slökkt verði á Kirkjuhólsvita

Hafnasamband Íslands og Vegagerðin hefur sent hlutaðeigandi sveitarfélögum beiðni um umsagnir þar sem lagt er til að lagðir verði niður sjö vitar við strendur landsins. Hér á Vesturlandi er lagt til að Kirkjuhólsviti á sunnanverðu Snæfellsnesi verði aflagður. Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nýverið var erindinu svarað á þá lund að Borgarbyggð teldi ekki tímabært að…Lesa meira

true

Ítrekuð skemmdarverk við sturtur

Á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að ítrekuð skemmdarverk hafi verið unnin við sturturnar á Langasandi að undanförnu. Starfsmenn Akraneskaupstaðar líta málið mjög alvarlegum augum þar sem hefur skapast slysahætta á svæðinu. Skemmdarvargarnir hafa rifið upp og fjarlægt mottur og verður svæðið því mjög hált auk þess sem boltar sem nýttir eru sem festingar fyrir motturnar…Lesa meira

true

Litháískir bræður til liðs við Víking Ólafsvík

Íslenski félagaskiptaglugginn er opinn um þessar mundir í fótboltanum. Vesturlandsliðin hafa verið róleg á markaðnum síðan hann opnaðist en nú hefur Víkingur Ólafsvík bætt við sig tveimur leikmönnum frá Litháen, réttara sagt tveimur bræðrum. Eivinas og Gabrielius Zagurskas munu leika með liðinu út tímabilið. Eivinas er 27 ára miðjumaður sem lék síðast hjá norska C-deildar…Lesa meira

true

Landsleikur á Akranesi á laugardaginn

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig þessa dagana fyrir Evrópumótið í körfuknattleik sem hefst í Finnlandi 31. ágúst næstkomandi. Liður í undirbúningi liðsins eru tveir vináttulandsleikir gegn Belgum hér heima. Sá fyrri fer fram í Kópavogi á fimmtudag en Seinni leikurinn verður spilaður í á Akranesi laugardaginn 29. júlí næstkomandi. Leikið verður í íþróttahúsinu við…Lesa meira

true

Gufuá er lítil en kná

„Við fjölskyldan áttum stöng í Gufuá í Borgafirði fyrir skömmu og það var sannarlega gaman,“ sagði Gunnar Örn Pétursson er við heyrðum í honum um veiðina í þessari litlu en fallegu á sem oft gefur þokkalega bæði af silungi og laxi. „Fyrri vaktina áttum við svæði fjögur og niður að ós,“ segir Gunnar. „Við veiddum…Lesa meira

true

Aldrei of seint að hreyfa sig!

Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra – FÁÍA – hefur unnið að íþróttum og leikjum fyrir eldri borgara í áratugi. Haldin hafa verið fjölmörg námskeið fyrir leiðbeinendur í Reykjavík og á Laugarvatni og kynningar hafa verið á léttum æfingum og leikjum á 50 stöðum á landinu. Nú stendur til að halda leiðbeinendanámskeið 14. ágúst nk. Að…Lesa meira

true

Öll sveitarfélög á Íslandi sýndu vináttu í verki

Öll sveitarfélög á Íslandi, 74 talsins, taka þátt í landssöfnuninni Vinátta í verki, sem Hjálparstarf kirkjunnar, Hrókurinn og Kalak efndu til vegna hamfaranna á Grænlandi í júní. Þúsundir einstaklinga og fjöldi félaga og fyrirtækja hafa líka lagt söfnuninni lið. Nú hafa safnast næstum 43 milljónir króna, án nokkurs tilkostnaðar. Söfnuninni lýkur nú í vikunni, og…Lesa meira

true

Kaupa fjórar íbúðir á Varmalandi

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku kauptilboð Lava Hotels á fjórum íbúðum á Varmalandi í Stafholtstungum. Tilboðið hljóðaði upp á 40 milljónir króna, eða um 40% af brunabótamati. Samkvæmt fasteignaskrá er fasteignamat íbúðanna alls 28,9 milljónir. Húsið er fjölbýlishús byggt árið 1983 og samtengt mötuneyti grunnskólans á staðnum.Lesa meira

true

Nýtt lag Red Robertsson komið út ásamt myndbandi

Um helgina gaf tónlistarmaðurinn Red Robertsson út lagið Keep on ásamt myndbandi. Red Robertsson er listamannsnafn Borgnesingsins Inga Björns Róbertssonar, eða Idda Bidda, og er lagið frumraun hans undir listamannsnafninu. Lagið er sungið af Stefaníu Svavarsdóttur, textann skrifaði Viðar Engilbertsson ásamt Idda og um hljóðblöndun sá Sigurður Ingvar Þorvaldsson. Iddi sagði í samtali við Skessuhorn…Lesa meira