
Skorradalshreppur gefur eignarhlut sinn í húsi við Hreppslaug
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum nýverið að afsala til Ungmennafélagins Íslendings, án endurgjalds, 40% eignarhlut hreppsins í nýju aðstöðuhúsi við Hreppslaug. Bókfært verð eignarhlutarins er 36,6 milljónir króna. Hreppsnefndin samþykkti viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 sem staðfestir afsal hlutarins. Þar sem um er að ræða skuldbindingu umfram 20% af skatttekjum sveitarfélagsins á yfirstandandi…