
Veröld
Veröld – Safn


Hinn sanni ungmennafélagsandi er þekkt hugtak enda á það djúpar rætur í íslenskri menningu og sögu. Vísað er til starfsemi ungmennafélaganna sem í upphafi síðustu aldar var stofnað til í sveitum landsins. Hugtakið vísar til hugsjóna, gilda og lífsviðhorfa sem efldu bæði einstaklinginn og samfélagið sem þeir voru hluti af. Kjarni ungmennafélagsandans byggir á nokkrum…Lesa meira

Orkusalan opnaði á föstudaginn tvær hraðhleðslustöðvar við Nesveg 1 í Stykkishólmi. Opnunin er liður í áframhaldandi uppbyggingu StoppuStuðs og styrkir aðgengi rafbílaeigenda að öflugri hleðslu á Snæfellsnesi. „Við erum stöðugt að bæta við hleðslunetið okkar og eru hraðhleðslustöðvarnar góður kostur fyrir ferðalanga sem þurfa að hlaða hratt og örugglega á lengri ferðum. Að ferðast á…Lesa meira


Nú berast fregnir af því að ein fámenn stétt landsmanna, flugvirkjar, ætlar í verkfall eftir viku. Finnst að þeir hafi setið eftir í kjörum miðað við þær stéttir sem þeir kjósa að bera sig saman við. Ekki veit ég nákvæmlega hvaða stéttir það eru, en giska á að flugmenn og flugumferðarstjórar séu í þeim hópi.…Lesa meira

Fjöldi íbúa í Dalabyggð er í sögulegu hámarki það sem af er þessum áratug og þarf að fara tíu ár aftur til að finna sambærilegan fjölda. Samkvæmt Þjóðskrá eru nú búsettir 677 íbúar í sveitarfélaginu. Árið 2020 voru 626 búsettir í Dölum. Þetta er því 7,5% fjölgun á sex árum. Lilja Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri kveðst…Lesa meira


Á mánudaginn voru kynnt drög að fjárlögum fyrir ríkissjóð Íslands. Nú bregður svo við að stefnt er að fyrstu hallalausu fjárlögunum í áratug. Eðli málsins samkvæmt mættu þessar áætlanir andstöðu, bæði frá stjórnarandstöðunni, sem á þó sinn hlut í því að ríkissjóður hefur safnað skuldum undanfarinn áratug, en ekki síður létu fulltrúar ýmissa atvinnugreina og…Lesa meira

Akranes mun fá nokkuð breytt yfirbragð dagana 15.–23. september þegar tökur á þýskri kvikmynd fara fram á nokkrum stöðum um bæinn. Kvikmyndin gerist á níunda áratug síðustu aldar og verða því ákveðnar götur, svæði og mannvirki tímabundið færð í búning þess tíma. Íbúar og gestir mega því eiga von á að sjá ýmislegt óvenjulegt á…Lesa meira
