Gamla íþróttahúsið við hlið Vinaminni. Ljósm. Akraneskaupstaður.

Akranes fær yfirbragð níunda áratugarins vegna kvikmyndatöku

Akranes mun fá nokkuð breytt yfirbragð dagana 15.–23. september þegar tökur á þýskri kvikmynd fara fram á nokkrum stöðum um bæinn. Kvikmyndin gerist á níunda áratug síðustu aldar og verða því ákveðnar götur, svæði og mannvirki tímabundið færð í búning þess tíma. Íbúar og gestir mega því eiga von á að sjá ýmislegt óvenjulegt á ferðum sínum um bæinn meðan á tökum stendur.

Kvikmyndatökunum munu fylgja einhver tímabundin truflun á umferð. Gera má ráð fyrir stuttum götulokunum og takmörkuðu aðgengi að einstökum svæðum, en tökuliðið mun leitast við að halda röskun í lágmarki og hleypa umferð í gegn þegar aðstæður leyfa. „Vegfarendur eru hvattir til að sýna tökuliðinu tillitssemi og fylgja leiðbeiningum umferðarstjóra á tökustöðum. Það verður því nokkur fortíðarbragur yfir Akranesi þessa daga þegar bærinn bregður sér í hlutverk níunda áratugarins fyrir alþjóðlega kvikmyndagerð,“ segir í tilkynningu frá Akraneskaupstað.