
Ráðstöfun frítímans
Hinn sanni ungmennafélagsandi er þekkt hugtak enda á það djúpar rætur í íslenskri menningu og sögu. Vísað er til starfsemi ungmennafélaganna sem í upphafi síðustu aldar var stofnað til í sveitum landsins. Hugtakið vísar til hugsjóna, gilda og lífsviðhorfa sem efldu bæði einstaklinginn og samfélagið sem þeir voru hluti af. Kjarni ungmennafélagsandans byggir á nokkrum lykilþáttum. Í fyrsta lagi ræktun lýðs og lands þar sem hlutverk félaganna var ekki einvörðungu að stunda íþróttir, heldur að rækta landið svo sem með skógrækt eða öðrum umhverfisbótum. Þá var hugsunin að mennta og rækta mannfólkið með félagsstarfi á borð við leiklist og þjálfun í ræðumennsku. Þannig snerist ungmennafélagsandinn um samvinnu og sjálfboðaliðastarf. Störfin voru unnin í almannaþágu án kröfu um eigin hagsmuni eða fjárhagslegan ávinning. Ávinningurinn varð hins vegar betra, mannvænlegra og skemmtilegra samfélag. Í stuttu máli snýst því hinn sanni ungmennafélagsandi um jákvæðni, samstöðu, heilbrigði og metnað til að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Þá græða allir.
Mér varð hugsað til þessa þegar ég um síðustu helgi hitti hóp karla sem lagt höfðu ómælda vinnu í endurgerð gamals skólabíls. Allt var verkið unnið í sjálfboðavinnu auk þess sem viðkomandi fóru í veskið til að standa straum af kaupum á varahlutum og efni til verksins. Auðvitað er vinna sem þessi áhugamál viðkomandi en afraksturinn sýndi að mínu mati að ennþá lifir ungmennafélagsandinn góðu lífi hjá þeim sem hann rækta.
Við lifum á tímum hraðra breytinga þar sem baráttan er að því er virðist endalaus um frítímann. Tækninni hefur fleygt fram og tækin sem í boði eru til að nálgast afþreyinguna eru almenningseign. Fólk á það svo til að sogast inn í þessi tæki og gjörsamlega gleyma stað og stund. Um leið kvarnast úr þeim tíma sem við höfum til venjulegs samneytis við annað fólk í raunheimum. Fyrir það geldur fjölskyldulífið en einnig allskyns félagsstarf. Einmitt í þessari viku sá ég tilkynningu þess efnis að áratuga gamall kiwanisklúbbur á höfuðborgarsvæðinu hélt sinn lokafund. Ágætlega var mætt á fundinn, en meðalaldurinn orðinn býsna hár. Endurnýjun hafði ekki átt sér stað og því fór sem fór.
Í rekstri íþróttafélaga er sagan svipuð. Þau halda þó áfram en yfirleitt er það vegna þess að til þess að gera fámennur hópur foreldra vinnur sjálfboðastörfin, heldur félags- og íþróttastarfinu gangandi. Þessir sönnu ungmennafélagar, sem líklega eru af fimmtu eða sjöttu kynslóð þeirra sem stofnuðu ungmennafélögin á árdögum síðustu aldar. Margir hafa rétta andann í genunum, meðan hugsjónin hefur útvatnast hjá öðrum. Síðan þegar allir verða hættir að leggja fram starf í sjálfboðavinnu mun þátttaka barna og ungmenna kosta meira í íþróttastarfinu og að endingu verður stéttaskipt hverjir geta tekið þátt og hverjir ekki.
Þessari öfugþróun verður ekki snúið við nema að hver og einn líti í eigin barm og fari að nýju að forgangsraða tíma sínum. Öll eigum við það sameiginlegt að hafa sömu 24 tímana í sólarhringnum. Hjá flestu vinnandi fólki skiptist sólarhringurinn í þrennt; svefn, vinnu og frítíma. Reglulegur átta tíma svefn á sólarhring er öllum nauðsynlegur. Kröfur hafa verið um að stytta verði vinnutímann, þannig að hann nái ekki þriðjungi sólarhringsins virka daga. Ástæðan er m.a. sú að þriðjungurinn sem flokkast sem frítími dugar ekki lengur til þeirra athafna sem fólk kýs. Þá hafa margir freistast til að ganga á þennan þriðjung sólarhringsins sem svefntíminn á að vera og hvað gerist þá? Jú, fólk mætir illa upplagt til starfa og fer að kenna vinnunni um. Ber við kulnun, síþreytu eða slæmum aðstæðum á vinnustað. Samt hefur vinnan í sjálfu sér lítið breyst. Það sem hefur breyst er að fólk mætir syfjað og illa stemmt til vinnu. Við þurfum að snúa ofan af þessu. Gera vinnuna á ný skemmtilega og taka að nýju þátt í heilbrigðu félags- og íþróttastarfi. Ekkert mál að því gefnu að við minnkum skjátímann í tölvunum okkar og símunum. Þá geta nefnilega allir sýnt hinn sanna ungmennafélagsanda með jákvæðni, samstöðu, heilbrigði og metnaði til að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Og þá græða allir.
Magnús Magnússon