
Baráttan um sæti í úrslitakeppni kvenna í körfuknattleik er í algleymingi eftir að Skallagrímur lagði Keflavík, 83-73 í Borgarnesi í gær. Skallagrímskonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru mun öflugri í upphafsfjórðungnum. Þær komust snemma leiks í 12-3 og leiddu með tólf stigum eftir fyrsta leikhluta, 27-15. Skallagrímskonur voru áfram sterkari í öðrum leikhluta…Lesa meira








