Íþróttir

true

Skallagrímsmenn fallnir

Skallagrímur tók á móti Þór Þ. í næstsíðasta leik Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur þurfti á sigri að halda í leiknum og jafnframt að treysta á hagstæð úrslit í leik Stjörnunnar og Hauka til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni, en Borgnesingar háðu harða baráttu við síðarnefnda liðið…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af í síðari hálfleik

ÍA og Valur mættust í Val í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var á Akranesi. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik stungu gestirnir af í þeim síðari og unnu að lokum stórsigur, 70-98. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Valsmenn náðu smá rispu og sex stiga forystu seint í eikhlutanum en Skagamenn…Lesa meira

true

Urðu að játa sig sigraða í spennandi leik

Skallagrímur tók á móti Tindastóli í jöfnum og spennandi leik í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Skallagrímur leiddi stóran hluta leiksins en aldrei skildu meira en sjö stig liðin. Sjö stigum munaði einmitt á liðunum þegar flautað var til leiksloka, en þá voru það gestirnir frá Sauðárkróki sem leiddu. Lokatölur í Borgarnesi urðu…Lesa meira

true

Robert Menzel gengur til liðs við ÍA

Pólski hafsentinn Robert Menzel hefur samið við Knattspyrnufélag ÍA út leiktíðina. Robert er 26 ára gamall og hefur spilað 70 leiki í efstu og næst-efstu deildinni í Póllandi en hann lék síðast með Podbeskidzie Bielsko-Biala í efstu pólsku deildinni. Hann kom á reynslu til liðsins fyrir tveimur vikum og ákveðið var að semja við þennan…Lesa meira

true

Snæfell skellti í lás í framlengingunni

Topplið Snæfells heimsótti Val í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik tók við spennandi síðari hálfleikur og úrslit leiksins réðust síðan ekki fyrr en eftir framlengingu. Snæfell hafði betur, 70-77. Snæfell hafði yfirhöndina í upphafi leiks og komst í 8-15 skömmu eftir miðjan fyrsta leikhluta. Valur rétti hlut sinn áður…Lesa meira

true

Skotfélag Snæfellsness byggir skothús

Það er mikið um að vera hjá Skotfélagi Snæfellsness þessa dagana en nú er verið að hefjast handa við byggingu á 75 fermetra skothúsi með sex riffilborðum. Hús af þessu tagi hefur verið í umræðunni hjá félaginu frá stofnun þess fyrir þrjátíu árum. Undirbúningur fyrir framkvæmdina hefur verið í gangi síðustu 5-6 ár. Þetta hús…Lesa meira

true

Bjarni Þór varð Íslandsmeistari í hnefaleikum

Skagamaðurinn Bjarni Þór Benediktsson úr Hnefaleikafélagi Akraness varð Íslandsmeistari í ólympískum hnefaleikum á Íslandsmótinu sem fram fór í Reykjavík um síðustu helgi. Bjarni Þór keppti í -64 kg flokki ungmenna og bar sigurorð af Sólon Ísfeld frá hnefaleikafélaginu Æsi í úrslitaviðureigninni á sunnudag. Sú viðureign var mjög spennandi og tæknileg og fengu þeir félagar sérstaka…Lesa meira

true

Víkingur kominn á blað í Lengjubikarnum

Víkingur Ólafsvík náði í sín fyrstu stig í Lengjubikar karla í knattspyrnu á móti ÍR síðastliðinn sunnudag. Bæði liðin voru án stiga fyrir leikinn en þau töpuðu fyrstu leikjum sínum í 3ja riðli A-deildar. Víkingur byrjaði leikinn vel en fyrsta markið koma á níundu mínútu þegar Pape Mamadou Faye skoraði frábært mark af 20 metra…Lesa meira

true

RUV sýnir beint frá tveimur leikjum stelpnanna okkar

Kvennalandsliðið í knattspyrnu kom til Algarve í Portúgal í gærkvöldi eftir langt og tafsamt ferðalag. Ytra keppir liðið um hinn árlega Algarve bikar en keppnin hefst á miðvikudag. RÚV sýnir beint frá tveimur fyrstu leikjum Íslands á mótinu, gegn Noregi klukkan 18:30 á miðvikudag og Japan klukkan 14:45 á föstudag. Mótið er einn stærsti liðurinn…Lesa meira

true

Káramenn fóru á kostum í úrslitaleiknum

Knattspyrnufélag Kára á Akranesi fagnaði í síðustu viku sigri í C-deild Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu. Mættu þeir 2. deildar liði Víðis frá Garði í úrslitaleiknum sem fram fór í Akraneshöll og höfðu öruggan sigur; 4-1. Kári leikur sem kunnugt er í 3. deild en lið Víðis fór upp í 2. deild að loknu síðasta keppnistímabili.…Lesa meira