Íþróttir

true

Snæfell hafði sigur á Val í erfiðum leik

Heil umferð fór fram í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Snæfell tók á móti Val í Stykkishólmi og hafði sigur en þurfti að hafa fyrir honum. Leikurinn var hnífjafn þar til Snæfellskonur tóku að síga fram úr í þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með tíu stigum, 82-72. Snæfell skoraði fyrstu tvær körfur…Lesa meira

true

Æfingar í frjálsum hafnar á Akranesi

Frjálsíþróttaæfingar eru hafnar hjá Ungmennafélaginu Skipaskaga á Akranesi. Æft er í Akraneshöllinni á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:30-19:00 báða dagana. Æfingarnar miðast við aldurinn 6 ára og uppúr. Þjálfari er Ómar Ólafsson og er síminn hans 841-8065. Allir eru velkomnir að taka þátt, segir í fréttatilkynningu frá Umf. Skipaskaga.Lesa meira

true

ÍA átti erfitt uppdráttar gegn sterku Fjölnisliði

ÍA lék öðru sinni á fjórum dögum þegar liðið heimsótti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudag. Liðin berjast á sitthvorum enda deildarinnar, Skagamenn við botninn en Fjölnir við toppinn. Á brattann var að sækja fyrir ÍA í leiknum og Skagamenn áttu erfitt uppdráttar gegn sterku Fjölnisliði. því heimamenn voru sterkari og leiddu…Lesa meira

true

Skallagrímskonur feti framar Stjörnunni

Skallagrímur mætti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Borgarnesi og voru Skallagrímskonur í miklu stuði á heimavelli. Þær voru sterkari allan leikinn og leiddu frá upphafi til enda. Að lokum fór svo að þær höfðu fimm stiga sigur, 79-74. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stig leiksins en hann fór heldur rólega…Lesa meira

true

Snæfellskonur stungu af í öðrum leikhluta

Snæfell og Njarðvík mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Leikið var í Njarðvík og gerðu Snæfellskonur góða ferð suður með sjó. Vendipunkturinn í leiknum var stórkostlegur annar leikhluti Snæfellskvenna, þar sem þær skoruðu 34 stig gegn níu og gerðu út um leikinn. Að lokum fór svo að sigur þeirra var æði stór,…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn töpuðu nýliðaslagnum

Nýliðaslagur var í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á föstudag þegar Skallagrímur tók á móti Þór frá Akureyri. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af. Skallagrímsmenn voru heldur sterkari framan af fyrri hálfleik en í þeim síðari snerist taflið við og Þórsarar höfðu að lokum sigur, 89-100. Heimamenn byrjuðu af krafti og náðu undirtökunum snemma…Lesa meira

true

Gestirnir stjórnuðu ferðinni frá upphafi

Botnlið Snæfell tók á móti Keflvíkingum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Snæfell hefur sem kunnugt er átt erfitt uppdráttar í vetur þó batamerki hafi verið á leik liðsins eftir því sem liðið hefur á mótið. Það hefur þó ekki dugað þeim til sigurs hingað til í vetur engin breyting varð þar á…Lesa meira

true

Gestirnir sigu fram úr í síðari hálfleik

ÍA mætti Breiðabliki í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi en eftir því sem leið á síðari hálfleik fór að draga af Skagamönnum. Blikar sigu fram úr jafnt og þétt og unnu að lokum 20 stiga sigur, 91-111. Blikar fóru…Lesa meira

true

Nýtti gamlársdag vel

Birta Sigþórsdóttir úr HSH gerði sér lítið fyrir og setti stúlknamet í kúluvarpi innanhúss á gamlársdag. Birta er úr Stykkishólmi, fædd 2003 og keppti í flokki 13 ára stúlkna. Hún tók þátt í Coca Cola móti FH í Kaplakrika í Hafnarfirði og bætti gildandi Íslandsmet í sínum aldursflokki þegar hún kastaði 2 kg kúlu 14,48…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í undanúrslitum bikarsins

Í dag var dregið í undanúrslitum Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ, en undanúrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöll miðvikudaginn 8. febrúar næstkomandi. Stórleikur undanúrslitanna er Vesturlandsslagur Skallagríms og núverandi bikarmeistara Snæfells í bikarkeppni kvenna. Snæfell sigraði Stjörnuna 68-63 í spennandi leik í átta liða úrslitum á sunnudagskvöld en Skallagrímur valtaði yfir KR, 78-42 á mánudag. Liðin eru bæði í…Lesa meira