Íþróttir

true

Skagakonur hófu mótið með látum

Keppni í 1. deild kvenna í knattspyrnu hófst á föstudagskvöld þegar ÍA tók á móti Tindastóli. Leikurinn fór fram í Akraneshöll, en dómari leiksins taldi veður ekki vænlegt til knattspyrnuiðkunar og færði leikinn því undir þak. ÍA var miklu betra liðið allan tímann og leikurinn fór að mestu leyti fram á vallarhelmingi gestanna. Skagakonur byrjuðu…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í kvöld

ÍA leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna í knattspyrnu í kvöld þegar liðið tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni. Upphaflega stóð til að leikurinn færi fram á Akranesvelli en vegna slæmrar veðurspár var hann færður undir þak. Rætist hins vegar úr veðrinu getur dómari leiksins tekið ákvörðun um að færa leikinn út að nýju.…Lesa meira

true

Víkingur Ó. semur við tvo miðjumenn

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvíkur samdi í gær við tvo leikmenn um að leika með liðinu í Pepsi deild karla í sumar. Það eru miðjumennirnir Kwame Quee og Eric Kwakwa. Kwame er sókndjarfur miðjumaður frá Síerra-Leóne, fæddur árið 1996 og leikur með FC Johansen í heimalandinu. Þrátt fyrir ungan aldur á hann að baki tólf landsleiki fyrir…Lesa meira

true

„Það verður æðislegt að byrja mótið“

„Sumarið leggst vel í mig, ekki spurning. Það er alltaf spenna sem fylgir því að byrja mótið,“ segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari ÍA, í samtali við Skessuhorn síðasta miðvikudag. ÍA mætir Tindastóli í fyrsta leik sumarsins í 1. deild kvenna föstudaginn 12. maí. Helena segir undirbúninginn ganga vel. „Liðið verður klárt og er í raun alveg…Lesa meira

true

„Stóra markmiðið að halda liðinu uppi“

„Þetta leggst ágætlega í mig, 1. deildin í ár verður líka alvöru deild, ekki riðlar eins og undanfarin ár. Það var algjörlega kominn tími til að breyta fyrirkomulaginu og sumarið verður ansi krefjandi fyrir ungan hóp,“ segir Björn Sólmar Valgeirsson, þjálfari Víkings Ó., í samtali við Skessuhorn. „Hópurinn er mjög ungur, við erum með sjö…Lesa meira

true

Víkingskonur töpuðu í bikarnum

Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í fyrstu umferð Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu laugardaginn 6. maí síðastliðinn. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og máttu Víkingskonur sætta sig við tap með einu marki gegn engu. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Sóley María Steinarsdóttir eina mark leiksins á 70. mínútu og dugði það Þrótti til sigurs, 0-1. Því er…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn sprækum Valsmönnum

Fjórir leiki voru spilaðir í 2. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Á Akranesi tók ÍA á mót Val. Gestirnir báru sigurorð af Víkingi Ó. í fyrsta leik sumarsins en ÍA tapaði 2-4 gegn fyrir Íslandsmeisturum FH. Sú markatala birtist aftur á stöðutöflu Akranesvallar í gær, því Valur sigraði 2-4 eftir að hafa…Lesa meira

true

Héldu héraðsmót HSH í frjálsum íþróttum

Árlegt héraðsmót HSH í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í íþróttahúsinu í Stykkishólmi, sunnudaginn 7. maí sl. Það var frjálsíþróttaráð HSH sem stóð að undirbúningi og framkvæmd mótsins. Um 54 keppendur voru mættir til leiks af Snæfellsnesinu öllu. Átta ára og yngri kepptu í langstökki með og án atrennu og 35 m hlaupi, 9-10 ára…Lesa meira

true

Skagamenn mæta Val í kvöld

Skagamenn fá tvo heimaleiki í upphafi Íslandsmótsins í knattspyrnu þetta sumarið, en síðasta sunnudag urðu þeir að játa sig sigraða heima gegn Íslandsmeisturum FH, 2-4. Í kvöld er komið að næstu orrustu, en Skagamenn mæta Val í 2. umferð Pepsi deilar karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 á Akranesvelli.Lesa meira