Íþróttir

true

Víkingur Ó semur við sjö efnilega leikmenn

Knattspyrnudeild Víkings Ó hefur gert þriggja ára samninga við sjö unga og efnilega leikmenn, en samningarnir gilda út keppnistímabilið 2019. Samið var við þá Pétur Steinar Jóhannsson, Konráð Ragnarsson, Sumarliði Kristmundsson, Sigurjón Kristinsson, Brynjar Vilhjálmsson, Sanjin Horoz og Hilmar Björnsson. Jónas Gestur Jónasson formaður félagsins fagnar þessum áfanga enda eru þetta allt góðir leikmenn sem…Lesa meira

true

Snæfell varð að lúta í gras gegn Haukum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Snæfell hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni það sem af er vetri. Liðið var fyrir leikinn án sigurs á botni deildarinnar og það breyttist ekki í gær því Haukar sigruðu, 78-95. Heimamenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiksins og leiddi fyrstu mínúturnar.…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum á Sauðárkróki

Skallagrímur mætti Tindastóli í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var norður á Sauðárkróki. Stólarnir voru í miklu stuði á Króknum, voru betri allan leikinn og unnu að lokum öruggan sigur, 97-75. Heimamenn byrjuðu af krafti og voru komnir í 12-0 áður en tvær mínútur voru liðnar af leiknum. Skallagrímsmenn tóku leikhlé og…Lesa meira

true

Góður sigur Skallagríms þrátt fyrir erfiða byrjun

Skallagrímskonur gerðu góða ferð suður með sjó í gærkvöldi og sóttu tvö stig til Grindavíkur þegar keppni hófst að nýju í Domino‘s deild kvenna eftir landsleikjahlé. Eftir erfiða byrjun komst Skallagrímsliðið betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á og hafði að lokum sigur, 61-72. Skallagrímur var lengi í gang í leiknum…Lesa meira

true

Fyrsta tap Snæfells í Hólminum svo árum skiptir

Í gærkvöldi hófst keppni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik að nýju eftir landsleikjahlé þegar leikin var heil umferð. Snæfell mætti Val í Stykkishólmi og urðu Íslandsmeistararnir að játa sig sigraða á heimavelli eftir framlengdan leik, 73-82. Er þetta fyrsta tap Snæfells á heimavelli svo árum skiptir, slíkt vígi hefur íþróttahúsið í Stykkishólmi verið. Valur…Lesa meira

true

Garðar Gunnlaugs og Ólafur Valur framlengja við ÍA

Markahrókurinn Garðar Gunnlaugsson hefur framlengt samning sinn við ÍA um tvö ár og mun því leika með liðinu út leiktímabilið 2018. Garðar gekk til liðs við ÍA á nýjan leik árið 2012 þegar hann sneri heim úr atvinnumennsku.  Hefur hann síðan þá upplifað tímana tvenna með ÍA en undanfarin þrjú ár hefur liðið átt prýðilegu…Lesa meira

true

Landsmót 50+ verður í Hveragerði

Forsvarsmenn Hveragerðisbæjar, Ungmennafélags Íslands og HSK hafa skrifað undir samning þess efnis að Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hveragerði næsta sumar, nánar til tekið helgina 23.-25. júní. Gert er ráð fyrir miklum fjölda þátttakenda á mótið. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið hugsað fyrir þátttakendur á aldrinum 50 ára og eldri. Boðið…Lesa meira

true

Skagamenn unnu dramatískan sigur á Hamri

Skagamenn gerðu góða ferð suður í Hveragerði síðastliðinn föstudag þegar þeir mættu Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók við kaflaskiptur síðari hálfleikur hjá leikmönnum ÍA en það kom ekki að sök. Skagamönnum tókst að tryggja sér dramatískan eins stigs sigur, 75-76 á lokasekúndum leiksins og þar með annan sigurinn…Lesa meira

true

Grindvíkingar stungu Snæfell af í síðari hálfleik

Botnlið Snæfells mætti Grindavík í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var suður með sjó. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd á vellinum í þeim síðari og unnu að lokum 36 stiga sigur, 108-72. Snæfellingar voru sterkari í upphafsfjórðungnum. Þeir náðu tólf stiga forskoti um hann miðjan áður en heimamenn…Lesa meira

true

Stjörnuhrap í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti toppliði Stjörnunnar í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimamenn léku afar vel allan leikinn bæði í vörn og sókn, börðumst um hvern bolta og unnu að lokum frækinn sigur á firnasterku liði Stjörnunnar, 78-73. Skallagrímur hafði yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta en forysta þeirra var þó aldrei meiri en…Lesa meira