Íþróttir

true

Skallagrímskonur rændar sigrinum

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar Breiðabliki í níundu umferð Domino‘s deildar kvenna á laugardagskvöld. Leikið var í Kópavogi og lokatölur urðu 85-79, þar sem Breiðabliki tókst að stela sigrinum á lokamínútunum eftir að Skallagrímur hafði leitt nánast frá upphafi. Var þetta fyrsti sigur Kópavogsliðsins í deildinni í vetur. Breiðablik skoraði fyrstu stigin en Skallagrímskonur…Lesa meira

true

Misstu dampinn í seinni hálfleik

Skallagrímur mætti Þór Þ. í áttundu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Þorlákshöfn í gærkvöldi. Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn stjórnina og sigruðu að lokum með 87 stigum gegn 74. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafsfjórðungnum. Þór komst tvisvar fimm stigum yfir en…Lesa meira

true

Meistaraflokkur ÍA sigraði á haustmóti

Haustmót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA gerði sér lítið fyrir og sigraði í meistaraflokki með 46.860 stig. Gerpla sigraði 1. flokki með 45.965 stig. Gerpla-1 sigraði í 2. flokki með 48.425 stig. Þá sigraði Gerpla í flokki KK yngri með 27.075 stig…Lesa meira

true

Brynjar Már sigraði þrefalt

Meistaramót BH í badminton var haldið í Hafnarfirði um síðustu helgi. Badmintonfélag Akraness sendi sjö keppendur á mótið sem allir stóðu sig með stakri prýði, eins og segir frá á Facebook-síðu félagsins. Brynjar Már Ellertsson varð þrefaldur meistari í A flokki. Hann sigraði í einliðaleik, tvíliðaleik með Pontusi Rydström og í tvenndarleik ásamt Brynju K.…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramót í línuklifri fór fram á Akranesi

Íslandsmeistaramótið í línuklifri fór fram um helgina á Akranesi. „Þetta er fyrsta Íslandsmeistaramót í línuklifri sem haldið er á Akranesi. Með nýrri og bættri klifuraðstöðu á Smiðjuloftinu hefur sá möguleiki opnast. Aðstaða til línuklifurs er með því besta sem gerist hér á landi og því er Smiðjuloftið mikil lyftistöng fyrir klifur á Íslandi,“ segir Þórður…Lesa meira

true

Skagamenn skotnir í kaf

Skagamenn máttu sætta sig við stórt tap, 77-118, þegar þeir mættu KR B í 2. deild karla í körfuknattleik í gær. Leikurinn fór fram á Akranesi. Jafnt var á með liðunum í fyrsta leikhluta og aðeins munaði fjórum stigum á liðunum að honum loknum. KR leiddi með 31 stigi gegn 27 stigum ÍA. Eftir það…Lesa meira

true

Snæfellingar fengu skell

Snæfell mátti sín lítils gegn toppliði Þórs Ak. þegar liðin mættust í sjöttu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Leikurinn var einstefna nánast frá upphafi og gestirnir sigruðu að lokum stórt, 61-96. Liðin fylgdust að þar til um miðjan upphafsfjórðunginn. Þá hallaði heldur betur undan fæti hjá Snæfellingum, sem…Lesa meira

true

Domagoj Samac til Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Króatann Domagoj Samac um að leika með liði Borgnesinga í Domino‘s deild karla út keppnistímabilið. Domagoj Samac er 25 ára gamall, 206 cm á hæð og leikur stöðu framherja. Hann gengur til liðs við Skallagrím frá króatíska úrvalsdeildarliðinu KK Hermes Analitica Zagreb, þar sem hann hefur leikið það sem af…Lesa meira

true

Dramatík í Borgarnesi

Skallagrímur tók á móti Keflavík í sjöundu umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Borgnesingar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 9-2. Keflvíkingar svöruðu fyrir sig og komust inn í leikinn aftur. Eftir það var mikið jafnræði með liðunum, sem spiluðu bæði þétta vörn. Keflvíkingar leiddu með einu stigi eftir upphafsfjórðunginn, 23-22. Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Michael Newberry snýr aftur til Ólafsvíkur

Víkingur Ó. hefur samið að nýju við varnarmanninn Michael Newberry. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2019. Michael gekk til liðs við lið Víking Ó. fyrir síðasta keppnistímabil og lék með liðinu við góðan orðstír í sumar. Hann var fastamaður í liði Ólafsvíkinga sem hafnaði í fjórða sæti í 1. deild karla í knattspyrnu og komst í…Lesa meira